Golf

Andri Þór kominn í toppsætið

Andri Þór Björnsson.
Andri Þór Björnsson.

Hinn 14 ára gamli Fannar Ingi Steingrímsson náði ekki að fylgja eftir frábærum hring á Securitas-mótinu í gær. Hann lék þó vel í dag og er í öðru sæti.

Fannar Ingi lék á 65 höggum í gær en kom í hús á 70 höggum í dag. Andri Þór Björnsson var þó maður dagsins en hann lék frábært golf og kom í hús á 64 höggum.

Andri Þór er með eins höggs forskot á Fannar Inga en Ragnar Már Garðarsson er í þriðja sæti.

Staðan:

1. sæti Andri Þór Björnsson, GR 70+64=134 -6

2. sæti Fannar Ingi Steingrímsson, GHG  65+70=135 -5

3. sæti Ragnar Már Garðarsson, GKG  70+66 =136 -4

4. sæti Haraldur Franklín Magnús, GR  67+700137 -3

5. sæti Emil Þór Ragnarsson, GKG  69+69=138 -2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×