Golf

Tiger jafnaði sinn næstversta hring

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger kastar frá sér kylfu í dag.
Tiger kastar frá sér kylfu í dag. Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods var í miklu basli á Memorial-mótinu í Ohio í Bandaríkjunum í dag. Hann skilaði sér í hús á sjö höggum yfir pari vallarins. Hann spilaði á 44 höggum á fyrri níu sem er hans versti árangur frá upphafi.

Tiger hefur einu sinni áður spilað á 79 höggum eftir að hann gerðist atvinnumaður en náði þó ekki að jafna sinn versta hring frá upphafi. Hann spilaði á 81 höggi á Opna breska árið 2002 í mjög erfiðum aðstæðum.

Tiger var pirraður í dag en hann hefur unnið mótið fimm sinnum áður og er ríkjandi meistari. Hann átti erfitt með púttinn en hann var með einn skolla í dag, tvo skramba og var einu sinni þremur höggum yfir pari á fyrstu níu holunum.

Hann neitaði fjölmiðlum um viðtal eftir að hann lauk keppni í dag. Hann er þó nokkuð frá efstu mönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×