Golf

Rose fékk ráðleggingar frá Yoda

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Íþróttasálfræðingurinn Gio Valente notaði myndbrot úr Star Wars-mynd til að hvetja kylfinginn Justin Rose til dáða fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi.

Rose fagnaði sigri á mótinu og varð þar með fyrsti Englendingurinn til að vinna risamót í golfi í sautján ár.

Umrætt myndbrot, sem er úr Empire Strikes Back, sýnir vitringinn Yoda ræða við Loga geimgengil um örlög sín.

„Ég lét Justin horfa á þetta vegna þess að ég vildi koma þeim skilaboðum til hans að hann væri tilbúinn og nógu þroskaður til að ná árangri,“ sagði Valente.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×