Golf

Luke Donald í forystu | Flott högg á fyrsta degi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Englendingurinn Luke Donald hafði forystu þegar hætta þurfti keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi í gærkvöldi vegna myrkurs.

Áður hafði leik tvívegis verið frestað vegna veðurs og á meirihluti kylfinga því eftir að ljúka fyrsta hring. Þeirra á meðal er Donald sem er á fjórum höggum undir pari eftir 13 holur.

Donald fékk fugl á þremur holum í röð áður en fresta þurfti leik. Vafalítið svekkjandi fyrir þann enska sem var í miklu stuði.

Á hæla Donald koma Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson og Ástralinn Adam Scott á þremur undir pari. Mickelson er einn fárra í efri hlutanum sem lauk hringnum en Scott lauk ellefu holum í gær.

Adam Scott með pinnann á MerionNordicphotos/Getty
Tiger Woods er á tveimur höggum yfir pari eftir tíu holur. Tiger, sem eins og svo oft áður þótti líklegur til afreka, náði tveimur fuglum en fékk einnig fjóra skolla.

Englendingurinn Lee Westwood kann hefðunum á Merion-vellinum í Pennsilvaníu litlar þakkir. Westwood átti frábært högg inn á flöt á tólftu holu. Boltinn hrökk hins vegar af körfunni á toppi pinnans og aftur út af flötinni. Gera má ráð fyrir að hefðbundið flagg hefði skilað betri útkomu fyrir Westwood sem er á einu höggi undir pari eftir þrettán holur.

Stöðuna í mótinu má sjá hér. Falleg tilþrif frá fyrsta deginum á Merion má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Leik frestað vegna úrhellis

Keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi hefur verið frestað um ótiltekinn tíma vegna úrhellis.

Leik frestað í annað sinn

Mótshaldarar á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi neyddust til að fresta leik öðru sinni í dag fyrir stundu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×