Golf

Ólafía og Tinna í úrslit á Íslandsmótinu í holukeppni

Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir mætast í úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni en undanúrslitin fóru fram í morgun.

Ólafía Þórunn vann frekar auðveldan sigur á Önnu Sólveigu Snorradóttur og sömu sögu má segja af Tinnu en hún var búin að klára Signýju Arnórsdóttur á 16. holu.

Úrslitin hefjast klukkan 12.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×