Golf

Féll úr leik eftir bráðabana

Haraldur Franklín.
Haraldur Franklín.
Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu. Hann féll úr leik í sextán manna úrslitum í dag.

Þá mætti Haraldur Ítalanum Renato Paratore og þurfti bráðabana til þess að fá sigurvegara í einvíginu. Þar hafði Ítalinn betur á fyrstu holu bráðabanans.

Alls tóku 288 kylfingar þátt í mótinu og árangur Haraldar er því mjög glæsilegur.

Haraldur er ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni og höggleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×