Bílar

Pissaði á teinana og lést úr raflosti

Finnur Thorlacius skrifar
Hinn látni, New York búinn Matthew Zeno
Hinn látni, New York búinn Matthew Zeno
Þrjátíu ára New York búi, að nafni Matthew Zeno, áttaði sig ekki á því að afar há rafmagnsspenna leikur um lestarteinana í neðanjarðarlestum borgarinnar. Honum hefur greinilega verið mikið mál að kasta af sér vatni þarna, en staðsetningin var einkar illa valin.

Straumurinn hefur semsagt borist upp eftir bunu hins óheppna og skömmu síðar lá hann ofan á teinunum og lést hann líklega samstundis. Gerðist þetta kl. 3:10 Í fyrrinott. Facabook síðan hans er nú troðfull af kveðjuskilaboðum fjölmargra vina hans eftir þetta slysalega andlát hans.






×