Bílar

Flottasta bónorðið

Finnur Thorlacius skrifar
Henni brá ekkert lítið tilvonandi brúðurinni þegar hún og tilvonandi voru á miðri kappakstursbraut að aka djarflega milli keila og kærastinn tók skyndilega í handbremsuna, snéri sér við í sætinu og dró upp trúlofunarhring og bað sinnar heittelskuðu.

Sem betur fer fyrir hann sagði hún já. Þetta gerðist á braut einni í Boston í Bandaríkjunum á klúbbdegi BMW. Í myndskeiðinu að ofan sést að tilvonandi brúðguminn er ári góður ökumaður og spennan hjá honum verður örugglega ekki meiri er hann hendir bílnum fimlega á milli keila með þá mest spennandi áætlun hvers manns í lífinu, að biðja kærustu sinnar innan nokkurra sekúndna.

Allt er þetta skemmtilega fest á filmu og mjög ánægjulegt áhorfs. Eitt flottasta bónorð sem sést hefur.






×