Golf

14. sæti eftir fyrsta keppnisdag

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stelpurnar eru í banastuði í York.
Stelpurnar eru í banastuði í York. Mynd/GSÍmyndir
Íslenska kvennalandsliðið í golfi er í 14. sæti eftir fyrsta keppnisdag á EM kvenna sem fram fer í York á Englandi.

Íslenska liðið lék á 383 höggum í dag og er 23 höggum yfir pari samtals. Fimm bestu skorin af sex telja á hverjum keppnisdegi. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, Signý Arnórsdóttir, GK, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, léku allar á 76 höggum í dag eða fjórum höggum yfir pari.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék á 77 höggum, Sunna Víðisdóttir úr GR á 78 höggum og Anna Sólveig Snorradóttir úr GK lék á 83 höggum.

Síðari hringurinn í höggleiknum fer fram í dag en danska kvennalandsliðið leiðir mótið á 11 höggum undir pari.

Guðrún Brá, Signý og Sunna hafa hafið leik á síðari hringnum  í höggleiknum. Hægt er að fylgjast með gangi mála í mótinu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×