Bílar

Fjölgun í Bílgreinasambandinu

Finnur Thorlacius skrifar
Fundargestir í skoðunarferð um höfuðstöðvar Toyota.
Fundargestir í skoðunarferð um höfuðstöðvar Toyota.
Fjölgað hefur um 12 fyrirtæki í Bílgreinasambandinu frá því í vor og er það um 10% fjölgun en alls eru nú 126 fyrirtæki skráð í sambandið. Má þar m.a. nefna almenn bílaverkstæði, bílasölur, bílaumboð, hjólbarðaverkstæði, málningar- og réttingarverkstæði, ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar, varahlutasalar og fleiri þjónustuaðila í bílgreininni.

Haustfundur Bílgreinasambandsins var haldinn í höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni í vikunni. Vel á annað hundrað manns mættu á fundinn og fóru yfir fjölmörg og fjölbreytt mál sem viðkoma bílgreininni. Að auki fengu fundargestir skoðunarferð um höfuðstöðvar Toyota. Bílgreinasambandið er samtök atvinnurekenda í sölu ökutækja, vöru og þjónustu þeim tengdum.






×