Bílar

Benz tvöfaldar sölu S-Class

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz S-Class
Mercedes Benz S-Class
Mercedes Benz hefur tekið á móti 30.000 pöntunum eingöngu í Evrópu í nýja kynslóð hins stóra S-Class lúxusbíls á aðeins 3 mánuðum. Allt árið í fyrra seldust þar 65.000 slíkir bílar og hefur því eftirspurnin nær tvöfaldast.

Því eru forsvarsmenn Mercedes Benz í Stuttgart í skýjunum, þar sem ákveðinnar hræðslu gætti við að markaðssetja svo dýran bíl á tímum erfiðrar bílasölu í álfunni. S-Class bíllinn kostar skildinginn, 72.000 Evrur, eða tæpar 12 milljónir króna.

S-Class bíll Mercedes Benz hefur ávallt selst ágætlega í Bandaríkjunum og er svo enn, þó svo Tesla Model S hafa vissulega klipið mjög af öðrum framleiðendum stórra lúxusbíla þar.

Mercedes Benz seldi fleiri bíla í september en fyrirtækið hefur nokkurntíma gert áður ef allar gerðir þess eru lagðar saman. Vóg þar mjög mikil sala í Asíu, þá helst í Kína og Japan.

Kínamarkaður er Benz mjög mikilvægur þar sem næstum jafn margir Mercedes Benz bílar seljast þar og í Þýskalandi og örugglega stutt í að Kína fari framúr heimalandinu í sölu, líklega á næsta ári.


Ekkert sérlega ljótur að innan





×