Golf

Styrkir til afrekskylfinga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson er einn sex styrkþega úr Forskoti.
Birgir Leifur Hafþórsson er einn sex styrkþega úr Forskoti. nordicphotos/getty
Í gær var tilkynnt um úthlutun úr Forskoti, afrekssjóði íslenskra kylfinga. Styrkirnir námu alls 15 milljónum króna og ákvað stjórn sjóðsins að styrkja sex kylfinga að þessu sinni.

Styrki hlutu Birgir Leifur Hafþórsson, Ólafur Björn Loftsson og Þórður Rafn Gissurarson, sem allir eru atvinnukylfingar. Þá fengu þau Axel Bóasson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir styrki fyrir einstök verkefni og Einar Haukur Óskarsson fyrir þátttöku sína í Nordea-mótaröðinni.

Þeir aðilar sem standa að sjóðnum auk Golfsambands Íslands eru Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×