Handbolti

Róbert fór á kostum í vinstra horninu

Róbert í leik með PSG.
Róbert í leik með PSG.
Línumaðurinn Róbert Gunnarsson reyndi fyrir sér í nýrri stöðu í gær þegar hann var settur í hornið hjá liði sínu, PSG.

Róbert stóð sig vel í leiknum, skoraði fimm mörk og var duglegur að leysa inn á línuna.

"Ég skal spila í marki ef þjálfarinn vill það. Ég vil bara vera á vellinum," sagði Róbert léttur eftir leik.

"Hann hefur allt. Snúninginn og bara nefndu það," sagði liðsfélagi Róberts, Ásgeir Örn Hallgrímsson, eftir 41-22 sigurinn á  Dijon í gær.

Innslag um Róbert frá leiknum í gær má sjá hér að neðan.


Robert Gunnarsson : ailier en devenir by ParisSaintGermainHandball

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×