Golf

Ben Crane enn í forystusætinu á St. Jude Classic

Ben Crane gerir reglulega teygjuæfingar.
Ben Crane gerir reglulega teygjuæfingar. AP/Getty
Veðrið hefur verið í aðalhlutverki hingað til á St. Jude Classic mótinu sem fram fer á TPC Southwind vellinum í Memphis en leik hefur verið frestað að hluta til á öllum þremur keppnisdögunum.

Bandaríkjamaðurinn Ben Crane leiðir mótið enn hann er á 13 höggum undir pari, fjórum höggum á undan landa sínum Troy Merritt sem er á níu höggum undir pari. Peter Malnati kemur í þriðja sæti á átta höggum undir.

Þrátt fyrir að leiða með fjórum höggum á Ben Crane samt mikið verk fyrir höndum í dag til þess að landa sínum fimmta titli á PGA mótaröðinni en hann á eftir að spila 30 holur þar sem ekki tókst að klára þriðja hring í gær.

Phil Mickelson hefur sýnt ágæt tilþrif hingað til og er hann jafn í 11. sæti á fimm höggum undir pari en ef hann verður í stuði í dag þá gæti hann mögulega gert atlögu að efstu mönnum.

Lokahringurinn verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 18:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×