Golf

Michelson verður ekki með á US Open

Landon Michelson kemst ekki á US Open þetta árið.
Landon Michelson kemst ekki á US Open þetta árið. Facebook/Landon Michelson
Landon Michelson nagar sig eflaust í handabökin þessa dagana en þessi 22 ára áhugamaður gerði slæm mistök sem kostuðu hann mögulega sæti á einu stærsta golfmóti heims, US Open. Michelson tók þátt í úrtökumóti fyrir US Open sem fram fór á Quail Valley vellinum í Flórída en hann lék hringina tvo á 71 höggi eða samtals á tveimur undir pari.

Það skor hefði dugað Michelson til þess að komast í tveggja manna bráðabana um sæti á US Open en hann gerði þau mistök að skila inn röngu skori á seinni hringnum, upp á 70 högg en ekki 71. Það skor hefði verið nóg til þess að tryggja honum þátttökurétt á þessu sögufræga golfmóti en Bandaríkjamaðurinn ungi sýndi þó að golf er heiðursmannaíþrótt og gerði hið rétta, tilkynnti mótshöldurum að hann hefði skilað inn röngu skori og fyrir það fékk hann frávísun.

„Ég er í raun alger asni, það er þess vegna sem þið eruð að tala við mig núna,“ sagði Michelson við fréttamenn Golf Channel eftir úrtökumótið. „Að skila inn réttu skorkorti er alfarið á mína ábyrgð og ég klikkaði á því í þetta sinn. Það hefði verið draumur að baða sig í athyglinni á US Open en svona er golf bara og ég verð að taka afleiðingum þessa klúðurs.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×