Golf

Martin Kaymer leiðir enn á US Open þrátt fyrir lélegan þriðja hring

Martin Kaymer er í bílstjórasætinu fyrir lokahringinn á US Open.
Martin Kaymer er í bílstjórasætinu fyrir lokahringinn á US Open. AP/Getty
Martin Kaymer leiðir enn á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi en fyrir lokahringinn er þessi 29 ára Þjóðverji á átta höggum undir pari. Kaymer hefur verið í sérflokki á Pinehurst velli nr.2 hingað til en hann lék fyrstu tvo hringina á 65 höggum eða samtals á tíu höggum undir pari. Hann var þó ekki jafn öflugur á þriðja hring sem hann lék á 72 höggum eða tveimur yfir pari.

Kaymer á fimm högg á næstu menn en sagan hefur kennt okkur að fimm högg eru fljót að fara á lokahringjum í risamótum eins og US Open. Á hæla hans, á þremur höggum undir pari, koma þeir Erik Compton og Rickie Fowler. Þeir tveir léku báðir á 67 höggum í dag en áhugavert verður að sjá hvort að þeir geti gert atlögu að Kaymer á morgun.

Áhugaverðir áskorendur á lokahringnum

Það þarf ekki að kynna Rickie Fowler fyrir golfáhugamönnum en hann var besti áhugakylfingur heims á sínum tíma og er þekktur á PGA-mótaröðinni fyrir einstaka prúðmennsku og skemmtilegan klæðaburð. Fowler tryggði sér þátttökurétt á PGA-mótaröðinni fyrir tímabilið 2010 og vann sitt fyrsta mót árið 2012 en hann gæti með góðum hring á morgun sett mikla pressu á Martin Kaymer.

Það getur Erik Compton líka á lokahringnum en saga hans er ævintýri líkust. Hann hefur farið í tvær hjartaígræðslur á lífsleiðinni en sú síðasta var árið 2008. Hann getur ekki gengið 18 holur eins og keppinautar sínir á PGA-mótaröðinni og þarf að nota golfbíl en hann fór í mál við mótaröðina á sínum tíma til þess að fá að nota bíl. Hann vann þá málsókn og er þessa dagana í fullu fjöru á PGA-mótaröðinni en það verður eflaust gaman að fylgjast með þessum frábæra kylfingi á lokahringnum á morgun.

Fleiri heimsklassa kylfingar geta gert atlögu að Martin Kaymer en á tveimur höggum undir pari eru þeir Henrik Stenson og hinn högglangi Dustin Johnson.

McIlroy og Scott nánast úr leik

Rory McIlroy spilaði sig úr toppbaráttunni í dag en hann lék þriðja hring á fjórum höggum yfir pari og er samtals á þremur höggum yfir pari fyrir lokahringinn. Besti kylfingur heims, Adam Scott, er einnig á þremur höggum yfir pari eftir hringina þrjá og það er mjög ólíklegt að þeir blandi sér í baráttu efstu manna.

Spennandi verður að sjá hvort að Martin Kaymer stenst pressuna á morgun en margir góðir kylfingar eiga eftir að sækja að honum. Lokahringurinn á þessu sögufræga golfmóti verður að sjálfsögðu í beinni á Golfstöðinni og hefst útsending klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×