Golf

Billy Hurley efstur á Old White

Billy Hurley hefur leikið mjög gott golf á Greenbrier Classic.
Billy Hurley hefur leikið mjög gott golf á Greenbrier Classic. AP/Getty
Bandaríkjamaðurinn Billy Hurley leiðir eftir þrjá hringi á Greenbrier Classic sem fram fer á Old White TPC vellinum í Virginíu en hann er samtals á 12 höggum undir pari. Hurley lék á 67 höggum í dag eða þremur undir en í öðru sæti er Argentínumaðurinn Angel Cabrera á 10 höggum undir pari.

Kevin Chappell kemur í þriðja sæti á samtals níu höggum undir pari en stór hópur kylfinga eru jafnir í fjórða sæti á átta höggum undir pari.

Ryderfyrirliði Bandaríkjanna, Tom Watson, er meðal þátttakenda í mótinu en hann er í 43. sæti á þremur höggum undir pari eftir hringina þrjá. Það verður að teljast frábær frammistaða enda er Watson 64 ára gamall og virðist endalaust geta barist við bestu kylfinga heims.

Masters meistarinn Bubba Watson er á sex höggum undir pari en með frábærum hring á morgun gæti hann blandað sér í baráttu efstu manna.

Ljóst er að lokahringurinn verður mjög spennandi enda margir sem geta barist um sigurinn en hann verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×