Halmstads komst úr fallsæti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2014 16:08 Kristinn og félagar unnu mikilvægan sigur í dag. Facebook-síða Halmstads
Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.Kristinn Steindórsson lék allan leikinn þegar Halmstads vann dramatískan sigur á Örebro á útivelli. Heimamenn komust yfir með sjálfsmarki á 25. mínútu og þannig stóðu leikar allt fram á 77. mínútu þegar Mikael Boman jafnaði metin fyrir Halmstads. Það var síðan Eric Smith sem skoraði sigurmark Halmstads á fyrstu mínútu uppbótartíma. Með sigrinum komst Halmstad úr fallsæti, en liðið situr nú í 12. sæti (af 16 liðum). Falkenbergs FF, lið Halldórs Orra Björnssonar, mátti þola 1-4 tap fyrir toppliði Malmö á heimavelli. Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn, en Godsway Donyoh kom þeim yfir á 13. mínútu. Það reyndist þó skammgóður vermir, en Agon Mehmeti jafnaði metin á 24. mínútu og skoraði svo sitt annað mark tólf mínútum seinna.Markus Rosenberg og Emil Forsberg bættu svo við mörkum fyrir Malmö í seinni hálfleik. Lokastaðan 1-4, Malmö í vil, en liðið er með níu stiga forystu á toppi deildarinnar. Halldór sat allan tímann á varamannabekk Falkenbergs sem féll niður í 11. sæti með tapinu. Þá gerðu IFK Norrköping og BK Häcken markalaust jafntefli á Nya Parken í Norrköping.Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 74 mínútur leiksins fyrir heimamenn, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom inn á sem varamaður á 60. mínútu hjá gestunum. Häcken situr í öðru sæti deildarinnar, en Norrköping í því níunda.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Fleiri fréttir Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Sjá meira