Golf

Joost Luiten lék best allra í Wales

Joost Luiten var sigursæll um helgina.
Joost Luiten var sigursæll um helgina. AP/Getty
Hollendingurinn Joost Luiten sigraði á Opna velska meistaramótinu sem fram fór á hinum glæsilega Celtic Manor velli og kláraðist um helgina. Luiten lék hringina fjóra á alls 14 höggum undir pari en sigurinn var þó langt í frá öruggur þar sem nokkrir kylfingar gerðu harða baráttu að honum á lokahringnum.

Luiten hafði þó sigur með einu höggi en Shane Lowry frá Írlandi og Englendingurinn Tommy Fleetwood deildu öðru sætinu, einu höggi á eftir, á 13 höggum undir pari.

Luiten var ekki langt frá því að spila sig inn í Ryder-lið Evrópu á dögunum en hann hlaut ekki náð fyrir augum fyrirliða liðsins, Paul McGinley, í fyrirliðavalinu. Hann getur þó huggað sig við ávísun upp á 375 þúsund evrur eða rúmlega 56 milljónir króna sem hann fékk fyrir sigurinn um helgina.

Þrír kylfingar úr Ryder-liði Evrópu tóku þátt í mótinu í Wales um síðustu helgi en heimamaðurinn Jamie Donaldson lék best þeirra og endaði að lokum jafn í fjórða sæti á 12 undir pari. Lee Westwood og Thomas Björn sigldu hins vegar lygnan sjó neðar á skortöflunni og enduðu mótið í kring um parið.

Þá er gaman að geta þess að lengsta upphafshögg í sögu Evrópumótaraðarinnar var mælt í mótinu um helgina en þar var að verki Belginn högglangi Nicolas Colsaerts. Upphafshögg hans á 18. holu fór alls 409 metra en Colsaerts þurfti aðeins fleygjárn í annað högg á þessari par 5 holu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×