Bílar

Opel Adam stökkmús á sterum

Finnur Thorlacius skrifar
Opel Adam S er sannkölluð stökkmús.
Opel Adam S er sannkölluð stökkmús.
Opel Adam smábíllinn sem selst hefur gríðarvel í Evrópu undanfarið mun brátt fást í sportútfærslu með 150 hestafla vél og fær hann stafinn S í endann. Þessi nýja útfærsla Adam verður kynntur á bílasýningunni í París sem hefst 2. október.

Fjögurra strokka og 1,4 lítra forþjöppudrifin vél verður í Opel Adam S og það hendir honum í 100 km hraða á 8,5 sekúndum. Fjöðrun bílsins er stífari en í hefbundnum Adam, hann er með Recaro sportsætum, 6 gíra beinskiptingu, 18 tommu felgum, OPC bremsum og bæði er innra og ytra útlit bílsins sportlegra og flottara.

Svo er aldrei að vita hvort Opel muni í framhaldinu framleiða enn öflugri útfærslu Adam sem fengi þá stafina OPC í enda nafns síns. Opel Adam er einn þeirra nýju bíla sem Bílabúð Benna mun kynna á næstunni, en eins og kunnugt er tók Benni við umboðssölu Opel bíla á Íslandi frá BL.






×