Handbolti

Guðjón Valur rólegur í risasigri

Guðjón skorar fyrir Barcelona.
Guðjón skorar fyrir Barcelona. vísir/getty
Handboltalið Barcelona vann enn einn stórsigurinn í deildinni í kvöld.

Að þessu sinni vann liðið tíu marka sigur, 31-41, á Guadalajara á útivelli.

Guðjón Valur Sigurðsson var óvenju spakur að þessu sinni og lét sér nægja að skora þrjú mörk í leiknum. Serhei Rutenka var markahæstur með sex.

Barcelona búið að vinna alla þrettán leiki sína í deildinni og stefnir á að vinna alla leiki sína í deildinni annað tímabilið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×