Bílar

Vann lúxusferð á Old Trafford

Finnur Thorlacius skrifar
Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna  afhendir Maríu Helgu Hróarsdóttur gjafabréf fyrir tvo á VIP ferð á leik Manchester United og Liverpool 14. des. Með þeim á myndinni er Aðalsteinn Gíslason.
Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna afhendir Maríu Helgu Hróarsdóttur gjafabréf fyrir tvo á VIP ferð á leik Manchester United og Liverpool 14. des. Með þeim á myndinni er Aðalsteinn Gíslason.
Chevrolet er stoltur styrktaraðili Manchester United. Bílabúð Benna, í samstarfi við Bylgjuna, bauð landsmönnum að skrá sig í verðlaunapott á Facebooksíðu Chevrolet á Íslandi.

Í verðlaun voru tveir VIP miðar, ásamt flugi og gistingu, á stórleik Manchester United og Liverpool á Old Trafford 14. desember. Leikurinn sló í gegn, fleiri þúsund manns skráðu sig og fjöldinn allur tvöfaldaði vinningslíkur sínar með því að reynsluaka nýjum Chevrolet hjá umboðinu.

Nú á dögunum var dregið út nafn Maríu Helgu Hróarsdóttur. Í tilkynningu frá Bílabúð Benna vill fyrirtækið þakka öllum þeim sem tóku þátt í leiknum.






×