Viðskipti erlent

Í ár er von á hundrað þúsund Bretum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í gjaldeyrisskiptum segist hafa tryggt sér nægar krónur til að anna eftirspurn bresks ferðafólks.
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í gjaldeyrisskiptum segist hafa tryggt sér nægar krónur til að anna eftirspurn bresks ferðafólks. Fréttablaðið/Stefán
Spá bresku Ferðamálastofunnar gerir ráð fyrir því að yfir 100.000 Bretar sæki Ísland heim á þessu ári. Frá því er greint á vef DigitalJournal að opinberar tölur í Bretlandi bendi til þess að 95 þúsund hafi komið hingað í fyrra, en gert er ráð fyrir sex prósenta aukningu milli ára. Norðurljósin eru sögð ýta undir ferðir hingað að vetri til.

Um leið er varað við skorti á krónum á breskum gjaldeyrismarkaði og vísað í umfjöllun The Telegraph þar sem Bretar eru hvattir til þess að sýna fyrirhyggju í að útvega sér gjaldeyri. Thomas Exchange Global, fyrirtæki sem sérhæfir sig í gjaldeyrisskiptum, tilkynnti hins vegar í gær að það hefði tryggt sér nægar birgðir af krónum til þess að anna eftirspurn ferðafólks.

„Aukagjöld leggjast á þegar fólk notar kredit-, eða debetkort í fríi sínu á Íslandi til að greiða fyrir vörur og þjónustu og svo gæti skiptigengi verið óhagstætt á hótelum og veitingastöðum fyrir pund, dollara og evrur,“ er haft eftir Trevor Samuel, sérfræðingi Thomson Exchange Global.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×