Aron skoraði eitt í mikilvægum sigri Anton Ingi Leifsson skrifar 21. febrúar 2016 15:36 Aron og félagar unnu góðan sigur í dag. vísir/epa
Veszprém vann nauman sigur á HC Prvo Zagreb í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag, 27-25. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark. Heimamenn í Veszprém byrjuðu feykilega vel og voru komnir í 6-2 eftir tíu mínútna leik. Þeir spiluðu frábæran varnaleik og gestirnir komust hvorki lönd né strönd. Áfram hélst bilið í fjórum til sex mörkum og þegar flautað var til hálfleiks leiddu heimamenn með fjórum mörkum, 16-12. Í síðari hálfleik vöknuðu gestirnir hins vegar til lífsins og söxuðu hægt og rólega á forskot heimamanna. Þeir voru einu marki undir þegar fimm mínútur var til leiksloka, 23-22. Þá skoraði Aron Pálmarsson sitt fyrsta og eina mark í leiknum og kom Veszprém í 24-22. Mikilvægt mark, en eftir þetta héldu heimamenn forystunni og unnu að lokum tveggja marka sigur, 27-25. Eftir sigurinn er Veszprém áfram í þriðja sætinu og eltir toppliðin, PSG og Flensburg sem eru á toppnum með 20 stig. Zagreb er í fimmta sætinu með níu stig. Ivan Sliskovic var markahæstur hjá Veszprém með sjö mörk, en Lazlo Nagy og Momir Ilic skoruðu sex hvor. Hjá gestunum skoruðu þeir Dobrivoje Markovic, Zlatko Horvat, Leon Susnja og Stipe Mandalinic allir fjögur mörk hver.
Handbolti Mest lesið Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Fótbolti Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti McIlroy skaut niður dróna Golf Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Fótbolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira