Handbolti

Flautumark hjá Löwen

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur var fimm marka maður í dag.
Guðjón Valur var fimm marka maður í dag. vísir/getty
Svíinn Kim Ekdahl du Rietz bjargaði stigi fyrir Rhein-Neckar Löwen á ævintýralegan hátt í dag.

Löwen var tveim mörkum undir gegn Pick Szeged þegar ein mínúta var eftir af leiknum. Pekeler minnkaði muninn í eitt mark og Du Rietz skoraði um leið og leikurinn var flautaður af.

Lokatölur 28-28 en þetta var leikur í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk úr níu skotum fyrir Löwen en Alexander Petersson skaut fjórum sinnum á markið án árangurs. Andy Schmid var markahæstur í liði Löwen með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×