Innlent

Fjölbreytt flóra á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ný mál og endurflutt eru boðuð frá ríkisstjórninni en málaskrá hennar var birt í gær.
Ný mál og endurflutt eru boðuð frá ríkisstjórninni en málaskrá hennar var birt í gær.
Alls eru 188 mál á málaskrá ríkisstjórnar Íslands fyrir komandi þingvetur. Skemmst er frá því að segja að þau eru jafn misjöfn og þau eru mörg. Stiklað er á stóru í þingmálaskránni hér að ofan.

Fæst mál eru á lista hjá forsætisráðherra, Bjarna Benediktssyni, eða fimm talsins. Þar á meðal er stofnun Þjóðarsjóðs sem ætlað er að vera varasjóður til að losa ríkissjóð úr klandri án þess að steypa honum í skuldir.

Flest málin koma frá frænda hans, fjármálaráðherranum Benedikt Jóhannessyni, en þau eru alls 37. Auk fjárlaga og fjármálaáætlunar má nefna breytingar á virðisaukaskatti, breytingar á tollalögum, breytingar á hverjir heyra undir kjararáð og aðgerðir til að draga úr skattsvikum.

Nokkur mál sem ekki náðu í gegn á síðasta þingi verða endurflutt. Þar ber fyrst að nefna tvö mál sem varða réttindi fatlaðs fólks sem ekki náðu í gegn á lokametrunum í vor. Þau verða með fyrstu málum sem verða lögð fram og er stefnt að því að þau fari í gegnum þingið strax á fyrstu mánuðum þess. Lyfja- og rafrettufrumvörp heilbrigðisráðherra er einnig að sjá á lista stjórnarinnar en það síðarnefnda mætti talsverðri andstöðu í vor.

Vegtollar Jóns Gunnarssonar færast nær því að verða að veruleika en í næsta mánuði stefnir hann að því að leggja fram frumvarp um stofnun félaga um vegaframkvæmdir á stofn­æðum frá höfuðborgarsvæðinu. Þá leggur hann aftur fram frumvarp sem afnemur fyrirhugaða fjölgun borgarstjórnarfulltrúa.

Dómsmálaráðherra stefnir að því að leggja endurupptökunefnd niður og koma á fót sérstökum endurupptökudómstól. Boðað frumvarp um brottfall ákvæða um uppreist æru kemur einnig fyrir þingið. Athygli vekur einnig að frumvarp um breytingar á helgidagafriði, sambærilegt því sem Píratar lögðu fram eitt sinn, er á dagskrá ráðherrans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×