Innlent

Mikill áhugi á Íslandi og markaðsherferðir hafnar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð ferðamálaráðherra, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu segja bjartara yfir sumrinu í ferðaþjónustu eftir tíðindi dagsins.
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð ferðamálaráðherra, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu segja bjartara yfir sumrinu í ferðaþjónustu eftir tíðindi dagsins. Vísir

Forstjóri Icelandair segir afar jákvætt að farþegar utan Schengen fái að koma til landsins með gild bólusetningar-eða mótefnavottorð. Mikilvægustu markaðir félagsins séu þar. Íslandsstofa hefur þegar hafið markaðssátak í Bretlandi og skynjar mikinn áhuga á Íslandi.

Dómsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra tilkynntu eftir ríkisstjórnarfund í morgun að í vikunni yrðu tekin gild bólusettningar-eða mótefnavottorð frá farþegum ríkja utan Schengen, eins og frá Bretlandi og Bandaríkjunum.

„Þetta eykur mjög svigrúm og tækifæri ferðaþjónustufyrirtækja til að markaðssetja sig gagnvart fólki sem hefur örugg vottorð, þannig að þetta eru mjög góðar fréttir,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra. 

Ferðamenn þurfa þó að hafa verið bólusettir með bóluefnum sem eru viðurkennd hjá Evrópsku lyfjastofnuninni. Rússneska bóluefnið Spútnik hefur enn ekki fengið viðurkenningu.

„Það er verið að fara yfir Spútnik hjá stofnuninni og ef og þegar það verður samþykkt fær fólk sem hefur verið bólusett með því sömu afgreiðslu og aðrir,“ segir Þórdís. 

Hlutabréf hækkuðu

Hlutabréf í Icelandair hækkuðu um sex prósent við tíðindi dagsins en árið 2019 mátti rekja 41% allra gistinátta á hótelum hér á landi til bandarískra og breskra ferðamanna.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair er ánægður með aðgerðirnar. 

„Þetta eru afar jákvæð tíðindi. Við höfum verið með mjög metnaðarfullar áætlanir fyrir  sumarið í Evrópu, Bretlandi og Bandaríkjunum og þetta eykur vonir um að þær gangi eftir.   Við erum búin að vera í markaðsetningu og söluaðgerðum í Bretlandi og Bandaríkjunum því  þetta eru stærstu og mikilvægustu markaðir okkar og bólusetning þar hefur gengið vel miðað við aðra markaði,“ segir Bogi. 

Hann segir ferðahug í fólki.

„Við höfum skynjað mikinn ferðavilja hjá fólki ekki síst í Bretlandi og Bandaríkjunum og mikinn áhuga á landinu,“ segir Bogi. 

Milljón horft á kynningu á Íslandi

Íslandsstofa hóf á ný að markaðssetja Ísland í Bretlandi fyrir rúmri viku. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu þar segir að eftir tíðindi dagsins hefjist fljótlega markaðsátak í Bandaríkjunum.

„Milljón manns hafa horft á myndbönd sem við erum að keyra þar og 600 þúsund manns horft á myndbönd sem við erum með á samfélagsmiðlum sem segir að það er talsverður áhugi í Bretlandi á Íslandi sem áfangastað,“ segir Sigríður.

Hún segir að ákvörðun stjórnvalda hafi þegar verið kynnt erlendum ferðaheildsölum sem séu gríðarlega ánægðir því Ísland sé eftirsóknarverður áfangastaður. Þá hafi almannatengslaskrifstofur sem Íslandsstofa vinnur með í Bretlandi og Bandaríkjunum verið látnar vita. Sigríður býst þó ekki við mikilli fjölgun ferðamanna fyrr en í maí. 

„Í Bretlandi ráðleggja stjórnvöld Bretum að byrja ekki að ferðast fyrr en 17. maí þannig að þetta hefur ekki áhrif strax en mun hafa mjög góð áhrif á ferðamannasumarið,“ segir Sigríður. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×