Innlent

Öku­níðingur á sjö­tugs­aldri notaði ó­lög­leg for­gangs­ljós

Árni Sæberg skrifar
Ekki má hver sem er nota sírenur og blikkljós.
Ekki má hver sem er nota sírenur og blikkljós. Vísir/Vilhelm

Í nótt barst lögreglu tilkynning um bíl sem reynt var ítrekað að aka á bíl þess sem tilkynnti. Bílinn var búinn ólöglegum forgangsljósum.

Í dagbók lögreglu segir að 65 ára gamall ökumaður hafi verið stöðvaður og handtekinn í gær eftir að hafa ítrekað ekið yfir gatnamót á rauðu ljósi, ekið fast upp að næstu bifreið og kveikt á sírenu og blikkljósum og loks ekið á móti umferð.

Maðurinn var látinn laus að loknum viðræðum við lögreglu og honum gert að fjarlægja ólöglegan neyðarbúnað úr bílnum.

Nokkur erill var hjá umferðarlögreglumönnum í gær en þrír ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur og tveir fyrir að vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Þá var þrettán ára unglingur stöðvaður í Hafnarfirði en sá hafði ekið ásamt þremur félögum sínum frá Reykjanesbæ að sækja þann fjórða í Hafnarfjörð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×