Stj.mál
104 105 106 107 108 109 110 111 112 … 187 ›
Telur ekki að samstaða muni aukast Útspil Norðuráls á Suðurnesjum verður ekki til þess að samstaða aukist meðal Norðlendinga um staðsetningu stóriðju, að mati framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Norðlendingar virðast samt sem áður ákveðnir í að komast aftur fram úr Suðurnesjamönnum í samkeppninni um næsta álver. Innlent 13.10.2005 15:33
Samningur auki ekki líkur á álveri Bæjarstjórinn á Húsavík, Reinhard Reynisson, segir að samningur Suðurnesjamanna við Norðurál um að kanna möguleika á álveri í Helguvík auki ekki líkur á því að álver rísi á Norðurlandi. Bæjarstjórinn segir að Norðurál hafi einmitt verið það fyrirtæki sem lengst hafi verið komið í að kanna möguleika á álveri norðan lands. Innlent 13.10.2005 15:33
Vilja að kolmunnaveiðum verði hætt Norska hafrannsóknarstofnunin og danska matvælaráðuneytið vilja að kolmunnaveiðum verði hætt þegar í stað. Það myndi kosta Ísland marga milljarða króna. Innlent 13.10.2005 15:33
Lengst í fríi á Norðurlöndum Íslenskir þingmenn fá lengst sumarfrí allra þingmanna Norðurlandanna. Finnar fá styst frí, rúmar sex vikur, en Íslendingar rúmar tuttugu. Innlent 13.10.2005 15:33
Gunnar fær engan stuðning eigin varaþingmanns Sigurlín Margrét Sigurðardóttir 1. varaþingmaður á lista Frjálslynda flokksins í Suðvestur kjördæmis Gunnars Örlygssonar ætlar ekki að fylgja honum í Sjálfstæðisflokkinn. Gunnar náði kjöri í þessu kjördæmi sem uppbótarþingmaður Frjálslynda flokksins í Alþingiskosningunum þann 10. maí árið 2003. F-listinn fékk 6,75% prósent gildra atkvæða þar. Innlent 13.10.2005 19:12
Stefna áfram að eigin vatnsveitu Formaður bæjarráðs Kópavogs fagnar vilja Orkuveitu Reykjavíkur til lækkunar á vatnsverði til Kópavogsbæjar. Hann segir bæinn engu að síður stefna að eigin vatnsveitu á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:12
Bjarna sé beitt í leikmannamálum Vestamannaeyingar gefa í skyn að formanni allsherjarnefndar Alþingis, Bjarna Benediktssyni, hafi verið beitt til að fá handknattleiksmenn til að yfirgefa ÍBV og ganga til liðs við Stjörnuna með loforði um ríkisborgararétt. Sport 13.10.2005 19:12
Áfram unnið að álveri fyrir norðan Stjórnvöld munu áfram vinna að því að álver rísi á Norðurlandi, segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. Hún vonast til þess að samkomulagið sem undirritað var í gær þrýsti á Norðlendinga að sýna nauðsynlega samstöðu. Innlent 13.10.2005 19:12
Ekki sáttur við niðurstöðu nefndar Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, Björgólfur Jóhannsson, er ekki sáttur við þá niðurstöðu svokallaðrar hágengisnefndar um að ekki sé ástæða til að grípa til sértækra aðgerða vegna hás gengis krónunnar. Hágengisnefnd viðurkennir í skýrslu, sem kynnt var í gær, að afkoma og rekstrarskilyrði sjávarútvegsins séu óviðunandi en samkvæmt niðurstöðum megi sjá merki um jákvæða þróun mitt í öllum erfiðleikunum. Innlent 13.10.2005 19:12
Framkvæmdir gætu hafist 2007 Fulltrúar Norðuráls á Grundartanga, Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um að kanna möguleika á rekstri álvers í Helguvík. Framkvæmdir gætu hafist árið 2007. Innlent 13.10.2005 19:12
Samið við Kína um fríverslun Ísland verður að öllum líkindum fyrsta ríkið í Evrópu sem mun gera fríverslunarsamning við Kína. Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Bo Xilai, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, hafa undirritað samkomulag milli landanna sem er undanfari fríverslunarviðræðna. Innlent 13.10.2005 19:12
Fjöldauppsagnir eða aukin umsvif? Grundvallarbreytingar gætu orðið á herstöðinni á Miðnesheiði á næstunni fallist Bandaríkjaforseti á einhverja þeirra tillagna sem liggja fyrir um framtíð stöðvarinnar. Sumar tillagnanna fela í sér miklar fjöldauppsagnir en aðrar gera ráð fyrir auknu umfangi. Innlent 13.10.2005 19:12
Vill áminna Kínverja Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur ritað Ólafi Ragnari Grímssyni forseta bréf vegna heimsóknar hans til Kína og lýst áhyggjum sínum af stöðu mannréttindamála í Kína. Grétar vill jafnframt að forsetinn komi þessu á framfæri við kínversk stjórnvöld. Innlent 13.10.2005 19:12
Stofna félag um stóriðju Blása á til sóknar í stóriðjumálum á Norðurlandi. Stofnfundur félags með þetta markmið verður á Akureyri á þriðjudag. Í yfirlýsingu frá hópnum segir að mikið sé af óbeislaðri orku bæði í fallvötnum og jarðvarma. Félagið ætlar að beita sé með beinum og óbeinum hætti fyrir því að þessi orka verði beisluð og nýtt til eflingar atvinnulífs. Innlent 13.10.2005 19:12
Norðmenn fá Konungasögur að gjöf Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra mun á fundi með Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, sem haldinn verður á morgun afhenda norsku þjóðinni gjöf Íslendinga í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Norðmenn öðluðust sjálfstæði og norska konungdæmið var endurreist. Gjöfin er 500 eintök af Konungasögum í fjórum bindum með norskum inngangi. Áætlaður kostnaður við verkið er 14-16 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:12
Fríverslun við Kína í burðarliðnum Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Bo Xilai, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, hafa undirritað samkomulag milli landana sem er undanfari fríverslunarviðræðna. Áætlað er að gera hagkvæmniskönnun til að undirbúa fríverslunarsamning og er Ísland fyrsta ríkið í Evrópu sem Kína gerir slíkan samning við. Innlent 13.10.2005 19:12
Ekki verði gripið til séraðgerða Afkoma og rekstrarskilyrði sjávarútvegsins eru óviðunandi, samkvæmt niðurstöðum svokallaðrar hágengisnefndar sem skilaði af sér í dag. Ekki er þó talin ástæða til að grípa til sértækra aðgerða og það má jafnvel sjá merki um jákvæða þróun mitt í öllum erfiðleikunum. Innlent 13.10.2005 19:12
Vildi bara styðja Ingibjörgu Helga Jónsdóttir, borgarritari og fyrrverandi aðstoðarkona Steingríms Hermannssonar, gekk eingöngu í Samfylkinguna til þess að styðja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í formannskjöri flokksins. Nafn Helgu átti hvergi að koma fram en það komst í hendur stuðningsmanna Össurar Skarphéðinssonar og í kjölfarið var starfsmanni á skrifstofu flokksins sagt upp störfum. Innlent 13.10.2005 19:12
Sjávarútvegurinn skiptir ekki máli "Það er ástæða fyrir því að Síldavinnslan hefur ákveðið að hætta vinnslu á þorski í landi," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað. Innlent 13.10.2005 19:12
Færri herstöðvum lokað en til stóð Herstöðvum Bandaríkjamanna á heimavelli verður fækkað mun minna en til stóð. Áhrifin á Keflavíkurstöðina eru óljós en fjölmargar tillögur hafa verið lagðar fram um framtíðarfyrirkomulag stöðvarinnar. Erlent 13.10.2005 19:12
Vara Írana við Stjórnvöld í Frakklandi, Bretlandi og Þýskalandi vöruðu Írana við því í dag að halda áfram kjarnorkutilraunum sínum; að öðrum kosti myndu ríkin ganga í lið með Bandaríkjamönnum í því að fá leyfi frá Sameinuðu þjóðunum til að grípa til nauðsynlegra aðgerða. Erlent 13.10.2005 19:12
Í olíuviðskiptum við Saddam? „Alger fjarstæða og pólitískt þrugl,“ segir breski þingmaðurinn George Galloway en Bandaríkjaþing sakar hann um að hafa hagnast á einkaviðskiptum með olíu fyrir Saddam Hussein. Franskur þingmaður og fyrrverandi ráðherra liggur einnig undir grun. Erlent 13.10.2005 19:12
Í olíuviðskiptum við Saddam? Bandarísk þingnefnd sakar tvo þekkta stjórnmálamenn frá Bretlandi og Frakklandi um að hafa átt í vafasömum olíuviðskiptum við Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Erlent 13.10.2005 19:12
Gunnar velkominn í flokkinn Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að þar sem Gunnar Örn Örlygsson hafi tekið út sína refsingu sé hann velkominn í Sjálfstæðisflokkinn. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist ekki vita hvort úrsögn Gunnars skaði flokkinn. Innlent 13.10.2005 19:12
Lítill drengskapur Gunnars "Það er augljóst mál, að þingmaður sem nú vill styðja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Halldórs Ásgrímssonar, á ekki heima í Frjálslynda flokknum," segir í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundi miðstjórnar Frjálslynda flokksins um ákvörðun Gunnars Örlygssonar að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 13.10.2005 19:12
Stjórnarskrá ESB samþykkt Bundestag, neðri deild þýska þingsins, samþykkti stjórnarskrá Evrópusambandsins með yfirgnæfandi meirihluta fyrir stundu. Stjórnarskráin á enn eftir að fara fyrir Bundesrat, efri deild þingsins, en ekki er búist við neinum umsnúningi þar. Erlent 13.10.2005 19:12
Stjórnarskrá ESB samþykkt Stjórnarskrá Evrópusambandsins var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í neðri deild þýska þingsins í morgun. Ekki er búist við að Frakkar fari eins mjúkum höndum um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu í lok mánaðarins. Erlent 13.10.2005 19:12
Raffarin aftur til starfa Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, sneri aftur til starfa í dag eftir að hafa gengist undir uppskurð á laugardag. </font />Ráðherrann var þá fluttur í skyndi á sjúkrahús í París vegna gallsteinkasts. Erlent 13.10.2005 19:12
Höfða mál gegn Hollendingum Ættingjar nokkurra þeirra Bosníumúslima sem Serbar myrtu við Srebrenitsa árið 1995 hafa höfðað mál á hendur hollenskum yfirvöldum til að fá úr því skorið hver það var nákvæmlega sem gaf hollensku friðargæsluliðunum skipun um að vísa fólkinu út í opinn dauðann. Erlent 13.10.2005 19:12
Kærir kjörstjórn Samfylkingarinnar Starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar var sagt upp störfum eftir að upp komst að átt hafði verið við kjörskrár og upplýsingar sendar út í heimildarleysi. Starfsmaðurinn hefur kært málið til Persónuverndar á þeirri forsendu að farið hafi verið í gegnum tölvupóst hans í heimildarleysi. Innlent 13.10.2005 19:12