Stj.mál
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 187 ›
Fólk velji skatthlutfallið sjálft Leyfa ætti sveitarfélögum að ákveða sjálf hve hátt útsvar þeirra sé, segir Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Slíkt þekkist til dæmis í Danmörku og Svþjóð. Kosningar marka þá stefnu sem íbúarnir vilji í þeim efnum. Innlent 13.10.2005 18:51
Vill ekki hætta með samræmd próf Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að hún teldi ekki rétt að hætta samræmdum prófum í grunnskóla. Þessi skoðun ráðherra gengur þvert á ályktun Félags grunnskólakennara í síðustu viku sem vill hætta að prófa grunnskólanemendur með þessum hætti. Innlent 13.10.2005 18:51
Siv réðst að utanríkisráðherra Siv Friðleifsdóttir réðst að utanríkisráðherra í þinginu í dag vegna ummæla hans um Evrópustefnu Framsóknarflokksins. Víst væri um tímamót að ræða. Hún spurði sig um andrúmsloftið á stjórnarheimilinu; hvaða skilaboð væri verið að senda forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:51
Rússar bætast í hóp gagnrýnenda Enn eykst þrýstingur á sýrlensk stjórnvöld að hverfa á brott með hersveitir sínar frá Líbanon. Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur nú bæst í hóp gagnrýnenda en hingað til hafa Rússar verið álitnir einir sterkustu bandamenn Sýrlendinga. Erlent 13.10.2005 18:51
Samkeppnisstofnun varaði við sölu Samkeppnisstofnun varaði við áhrifum af sölu grunnnets Landssímans fyrir fjórum árum. Stofnunin taldi það hafa alvarlegar afleiðingar ef ekki yrði gripið til hliðaraðgerða vegna símasölunnar. Innlent 13.10.2005 18:51
Íslenskir dómstólar hlíti EFTA Í frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er ákvæði sem segir að íslenskir dómstólar verði að hlíta niðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA í samkeppnismálum er varða Evrópska efnahagssvæðið. Iðnaðarráðherra segir það ekki brot á ákvæði í stjórnarskrá er varði sjálfstæði dómstólanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi Framsóknar aldrei minna Fylgi Framsóknarflokksins er í sögulegu lágmarki, samkvæmt nýrri könnun þjóðarpúls Gallups sem birt var á RÚV í gær. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 10% og hefur minnkað um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 13.10.2005 18:51
Vilja afsögn forseta Líbanons Lykilmenn innan stjórnarandstðunnar í Líbanon vilja að Emile Lahoud, forseti landsins, segi af sér og feti þar með í fótspor ríkisstjórnar landsins sem óvænt sagði af sér í fyrradag. Háttsettur maður innan stjórnarandstöðunnar sagði í viðtali við fréttastofu Al-jazeera í gær að afsögn forsetans myndi skapa nýjan kafla í samskiptum Líbanons við Sýrland. Erlent 13.10.2005 18:51
Íslendingar flytja vopn til Íraks Ríkisstjórnin hefur boðist til að flytja 500 tonn af vopnum og skotfærum til Íraks á vegum NATO. Davíð Oddsson utanríkisráðherra upplýsti þetta á Alþingi í gær við umræður utan dagskrár um stuðning Íslands við þjálfun íraskra öryggissveita. Innlent 13.10.2005 18:51
Upplýsingar um brot Írana Bandaríkjamenn krefjast þess að Alþjóða kjarnorkumálastofnunin veiti öryggisráði Sameinuðu þjóðanna upplýsingar um brot Írana á kjarnorkusáttmálum og segir sendiherra Bandaríkjanna við stofnunina að henni beri skylda til þess að gera ráðinu viðvart. Erlent 13.10.2005 18:51
Þrjár nýjar stofnanir Í nýjum frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er lagt til að í stað Samkeppnisstofnunar verða til tvær stofnanir, Samkeppniseftirlitið og úrskurðarnefnd samkeppnismála. Að auki verður sett á fót Neytendastofa. Innlent 13.10.2005 18:51
Engin stefnubreyting Ályktun Framsóknarflokksins um hugsanlegan undirbúning aðildarviðræðna við Evrópusambandið breytir engu um stefnu stjórnvalda og markar engin tímamót, að sögn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:51
Heimild yfirvalda felld niður Heimild samkeppnisyfirvalda til að bregðast við aðstæðum sem skaða samkeppni er felld niður samkvæmt lagafrumvörpum sem viðskiptaráðherra lagði fram í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Fagna hlutdeild einkaaðila Frjálshyggjufélagið fagnar hugmyndum um aukna hlutdeild einkaaðila í rekstri orkufyrirtækja. Það segir aðild einkaaðila til þess fallna að styrkja greinina, auka þróun og koma í veg fyrir óskynsamlegar og óarðbærar fjárfestingar. Innlent 13.10.2005 18:51
Ánægja með frumvarpið "Við erum almennt ánægðir með þessa stjórnvaldsbreytingu og teljum að hún muni verða til góðs," segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vegna frumvarps Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra um sameiningu Samkeppnisráðs og Samkeppnistofnunnar í Samkeppniseftirlitið og stofnun Neytendastofu. Innlent 13.10.2005 18:51
Stjórnandi Hong Kong segir af sér Tung Chee-hwa, stjórnandi Hong Kong, hefur sagt af sér embætti. Tung var ákaflega óvinsæll stjórnandi og héldu íbúar Hong Kong hver mótmælin á fætur öðrum til að sýna andstöðu sína við stjórn hans. Afsögnin fylgir í kjölfar þess að Tung fékk ávítur frá Peking fyrir slælega stjórnunarhætti. Erlent 13.10.2005 18:51
R-listinn sveik loforð Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, segir R-lista hafa rofið heiðursmannasamkomulag sem laut að því að hann fengi að leggja fram tillögu um endurskoðun á niðurrifi gamalla húsa við Laugarveg á fundi borgarstjórnar í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Sýrlendingar hindra lýðræðisþróun Það hitnar undir Sýrlendingum. Bandaríkjamenn saka þá um að hindra lýðræðisþróun og í Líbanon magnast óánægja með afskipti Sýrlendinga þar. Erlent 13.10.2005 18:51
Ísland flytur vopn til Íraks Íslensk stjórnvöld hafa tekið að sér að flytja 500 tonn af vopnum og skotfærum til Íraks á vegum NATO. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í umræðum á Alþingi nú síðdegis að meginhluti af framlagi Íslands til Íraks færi þó í neyðar- og mannúðaraðstoð. Erlent 13.10.2005 18:51
Framtíð Varnarliðsins rædd Embættismannaviðræður um framtíð Varnarliðsins hefjast á næstunni og gerir Davíð Oddsson utanríkisráðherra ráð fyrir að niðurstaða fáist á árinu. Hann og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddust við í fyrradag um framhald viðræðna. Innlent 13.10.2005 18:51
Engin samkeppni á lyfjamarkaði Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir enga samkeppni á lyfjamarkaði á Íslandi. Samkeppnislögin séu mjög ströng hvað varðar markaðsráðandi fyrirtæki. Hún segir Samkeppnisstofnun hins vegar ekki fyrir verkum. Innlent 13.10.2005 18:51
Ekki nauðsynlegt að þýða öll lög Frá og með áramótum verða íslensk stjórnvöld ekki lengur skuldbundin til að þýða á íslensku öll lög og reglugerðir sem gilda hér á landi. Frumvarp dómsmálaráðherra, sem afnemur þýðingarskylduna, var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:51
Draumar um virðingu sjálfsagðir Viðhorf þriggja þingmanna úr ólíkum flokkum varðandi stefnu stjórnvalda að sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eru um margt lík. Íslendingar hafi þá stöðu í heiminum að við getum haft áhrif. Þó var deilt um hvort kostnaðurinn væri þess virði. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Segir Gunnar skorta reynslu Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist telja Gunnar Örlygsson efnilegan stjórnmálamenn en hann skorti reynslu til að fara í varaformannsembættið á landsþingi flokksins um næstu helgi. Hann segir að afbrot hans hafi verið flokknum erfið en fagnar því að málarekstrinum sé lokið. Innlent 13.10.2005 18:50
Viðgerð er ofarlega á dagskrá Það blasir við að ráðast þarf í margvíslegar endurbætur á Þjóðleikhúsinu, segir Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Ekki hefur þó verið ákveðið hvenær lagt verður til fjármagn í þær endurbætur, en slík fjárúthlutun er ofarlega á lista hjá menntamálaráðuneytinu. Innlent 13.10.2005 18:50
Vildu láta reyna á meirihluta Sjálfstæðismenn báru fram tillögu á borgarstjórnarfundi í dag um að viljayfirlýsing borgarstjórnar og ríkisstjórnarinnar um sölu á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun yrði borin undir atkvæði. Komið hefði fram andstaða hjá vinstri - grænum sem skapaði óvissu um hvort meirihluti væri fyrir málinu. Borgarstjóri segir það af og frá. Innlent 13.10.2005 18:50
Vill draga úr niðurrifi húsa Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, ætlar að leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar í dag um að nýjum starfshópi verði komið á fót til að endurskoða deiliskipulag við Laugaveg. Markmið endurskoðunarinnar verði að draga úr þeim víðtæku heilmildum til niðurrifs gamalla húsa við Laugaveg sem ætlunin sé að veita. Innlent 13.10.2005 18:50
Tuttugu um hverja lóð Rúmlega 1.300 einstaklingar og fyrirtæki sóttu um sextíu lóðir sem Hafnarfjarðarbær auglýsti lausar til umsóknar. Lóðirnar eru í fjórða áfanga Valla og ná yfir átta hektara svæði. Innlent 13.10.2005 18:50
Reiðum okkur hvorir á aðra Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, segir að Norðmenn og Íslendingar reiði sig mjög hvor á aðra. Ef annað landið gengi í Evrópusambandið yrði hitt að fylgja á eftir. Norðmenn yrðu að gefa upp forræði yfir fiskimiðum gengju þeir í ESB.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Framsókn aldrei lægri hjá Gallup Framsóknarflokkurinn mælist með tíu prósenta fylgi í könnun Gallups. Fylgið er minna en flokkurinn hefur áður mælst með hjá fyrirtækinu. Innlent 13.10.2005 18:50