Stj.mál
133 134 135 136 137 138 139 140 141 … 187 ›
Rýnihópur komi að Laugavegsmáli Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, hyggst í dag á fundi ráðsins leggja til að skipaður verði rýnihópur um útlit nýbygginga, viðbygginga og breytinga við Laugaveg. Á hópurinn að vera skipulagsráði til stuðnings við mat á tillögum um uppbyggingu við Laugaveg á grundvelli samþykkts deiliskipulags eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá skipulagsráði. Innlent 13.10.2005 18:49
Raddir þingmanna á netinu Síðan í haust hefur verið hægt að hlusta á raddsýnishorn alþingismanna á vef þingsins, althingi.is. Innlent 13.10.2005 18:49
Aðför að landsbyggðinni Stjórn Vinstri grænna í Skagafirði mótmælir hugmyndum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um sameiningu og einkavæðingu Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða. Innlent 13.10.2005 18:49
Lóðaverð nýtt sem tekjustofn "Það er ánægjulegt að það verði skoðað hvernig koma á í veg fyrir að sveitarfélögin stuðli að hækkun fasteignaverðs," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær um þróun fasteignaverðs. Innlent 13.10.2005 18:49
Vilja Íbúðalánasjóð út af markaði "Frelsinu fylgir ábyrgð og bankarnir verða að axla þá ábyrgð gagnvart markaðnum til langtíma," segir Hjálmar Árnason, alþingismaður Framsóknarflokksins, en hann hefur ásamt Ögmundi Jónassyni, þingmanni Vinstri-grænna, farið hvað hörðustu orðum um Samtök banka og sparisjóða og aðför þeira að Íbúðalánasjóði. Innlent 13.10.2005 18:49
Metur lánstraustið óbreytt Matsfyrirtækið Standard og Poors metur lánstraust Landsvirkjunar óbreytt miðað við núverandi eignarhald en segir horfurnar neikvæðar vegna boðaðrar einkavæðingar. Innlent 13.10.2005 18:49
Hver á að eiga orkulindirnar? Grundvallarágreiningur í íslenskum stjórnmálum um hver eigi að eiga orkulindir þjóðarinnar kristallaðist í snörpum umræðum á Alþingi í dag. Formaður Vinstri grænna setti samstarfið innan R-listans í uppnám þegar hann strengdi þess heit að allt yrði gert til að koma í veg fyrir sameiningu orkufyrirtækja ríkisins og einkavæðingu þeirra. Innlent 13.10.2005 18:49
Viðræður um kjarnorkumál N-Kóreu? Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu, segist reiðubúinn að hefja viðræður um kjarnorkumál landsins á nýjan leik, að því gefnu að Bandaríkjamenn sýni af sér heilindi í slíkum viðræðum. Þá segir leiðtoginn einnig að uppfylla þurfi ákveðin skilyrði ef viðræðurnar eigi að hefjast á nýjan leik, en tiltekur ekki hver þau skilyrði séu. Erlent 13.10.2005 18:48
Óvíst um sameiningu orkufyrirtækja Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um sameiningu orkufyrirtækja í eigu ríkisins. Hann segir að það eigi að vera útgangspunktur við undirbúning hugsanlegra sameininga að störfum á landsbyggðinni fækki ekki í kjölfarið. Innlent 13.10.2005 18:49
Logandi átök um Landsvirkjun Þingmenn, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, lýstu í gær yfir andstöðu sinni við sameiningu Landsvirkjunar, Orkubúsins og Rarik. Varaformaður Framsóknarflokksins gagnrýnir viðskiptaráðherra fyrir að ræða ekki mögulega einkavæðingu innan þingflokks Framsóknarflokksins. Málið hefur verið rætt innan þingflokks Sjálfstæðisflokks. Innlent 13.10.2005 18:49
Stofna samráðshóp um húsarifin Húsarif á Laugavegi og breytingar þar hafa vakið sterk viðbrögð og nú hafa borgaryfirvöld ákveðið að stofna samráðshóp, skipulagsnefnd til ráðgjafar. Hópurinn á að starfa á meðan breytingarnar standa yfir en gert er ráð fyrir að þær taki tvo áratugi. Innlent 13.10.2005 18:48
Frekari skuldbindingar NATO í Írak Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra situr í þessum töluðum orðum með Bush Bandaríkjaforseta á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Frekari skuldbindingar NATO-ríkja í Írak og Afganistan er meðal þess sem Bush er talinn ætla að mæla fyrir á fundinum.</font /> Erlent 13.10.2005 18:48
Vanhugsaðar hugmyndir ráðherra Vinstri - grænir í Skagafirði mótmæla harðlega „vanhugsuðum hugmyndum“ iðnaðarráðherra um sameiningu og einkavæðingu Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða. Þeir segja markaðs- og einkavæðing almannaþjónustu á sviði orkuframleiðslu og orkudreifingar ganga þvert gegn vilja og hagsmunum íbúa landsbyggðarinnar. Innlent 13.10.2005 18:49
VG á móti sölu Landsvirkjunar Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík áskilur sér allan rétt til að leggjast gegn áformum um fyrirhugaða sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Það þjóni hvorki hagsmunum Reykvíkinga né annarra landsmanna að málið fari lengra á þeim forsendum sem iðnaðarráðherra hafi lagt upp. Innlent 13.10.2005 18:48
Skátar í hávegum í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær verður fyrst bæjarfélaga til að semja um rekstur á skátastarfsemi. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun undirrita samstarfssamning við skátafélagið Hraunbúa í kvöld. Innlent 13.10.2005 18:48
Ríkið hætti afskiptum Það hlýtur að vera tímaspursmál hvenær síðustu afskiptum ríkisvaldsins af fjármálamarkaðnum lýkur og ótrúlegt að stjórnvöld hafi enn ekki áttað sig að fullu á þeim ávinningi sem frelsisvæðing fjármálakerfisins hefur skilað samfélaginu. Þetta sagði Einar Sveinsson, formaður bankaráðs Íslandsbanka, á aðalfundi bankans fyrir stundu. Innlent 13.10.2005 18:49
Reiðubúinn að fara burt með herinn Forseti Sýrlands segist reiðubúinn að taka skref í þá átt að fara með her Sýrlendinga burt frá Líbanon á næstunni. Sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greinir frá því að forsetinn hafi lýst þessu yfir oftar en einu sinni á fundi sínum með yfirmanni Arababandalagsins í gær. Erlent 13.10.2005 18:48
Guðni vill rífa Steingrímsstöð Landbúnaðarráðherra lýsir því yfir að hann vilji fjarlægja Steingrímsstöð í Efra-Sogi. Það væri lítil fórn fyrir Landsvirkjun. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir ekki víst að það yrði urriðanum til bóta að fjarlægja stöðina. Innlent 13.10.2005 18:49
Uppreisnarmennirnir vel að sér Hópur uppreisnarmanna í Írak, sem hefur það að markmiði að skerða birgðir olíu, vatns og raforku í landinu, býr yfir mikilli þekkingu á innviðum orkumála í höfuðborginni Bagdad. Dagblaðið<em> New York Times</em> hefur eftir embættismönnum í Írak og Bandaríkjunum að aðgerðir hópsins upp á síðkastið beri þess merki að hann sé orðinn mjög skipulagður. Erlent 13.10.2005 18:48
Ekki selt til að einkavæða Fulltrúar Vinstri grænna í R-listanum vilja ekki að Landvirkjun verði einkavædd. Áskilja sér rétt til að greiða atkvæði gegn sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Borgarstjóri vill aðskilja sölu borgarinnar og einkavæðingu ríkisins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:49
Leita að nýjum yfirmanni Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir leitað logandi ljósi að nýjum yfirmanni flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna en Hollendingurinn Ruub Lubbers sagði embættinu af sér um helgina vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Erlent 13.10.2005 18:49
Stríðsöxin grafin á NATO-fundinum Evrópuþjóðir og Bandaríkin grófu stríðsöxina á táknrænan hátt í dag þegar samstaða náðist meðal leiðtoga Atlantshafsbandalagsins um að NATO-ríkin tækju að sér að þjálfa öryggissveitir í Írak. Framlag Íslands felst í tólf milljóna króna stuðningi. Erlent 13.10.2005 18:49
Þingmenn tala af vanþekkingu Fyrrverandi framkvæmdastjóri tóbaksvarnanefndar segir þingmenn tjá sig af mikilli vanþekkingu um hugsanlegt bann við reykingum á veitinga- og kaffihúsum. Hann bendir á að samkvæmt rammasamningi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar geti Ísland ekki skorast undan því að vernda fólk gegn tóbaksreyk á öllum opinberum stöðum. Innlent 13.10.2005 18:48
Sjóðirnir liggja frystir í banka Sjóðir Bandalags jafnaðarmanna liggja frystir í Landsbankanum og svo virðist sem enginn geti gert tilkall til þeirra. Stefán Benediktsson, fyrrverandi alþingismaður, segir flokkssystkin sín hafa ásælst sjóðina á sínum tíma en ekki haft erindi sem erfiði. Innlent 13.10.2005 18:48
Stjórnin féll í Portúgal Stjórnarandstaðan í Portúgal bar í gær sigur úr býtum í þingkosningum í landinu. Flokkur sósíalista undir stjórn Jose Socrates fékk hreinan meirihluta í fyrsta skipti í sögu landsins. Hinn hægrisinnaði Pedro Santana Lopes hefur því hrökklast úr starfi forsætisráðherra eftir að hafa aðeins gegnt því í rúmlega hálft ár. Erlent 13.10.2005 18:48
Nýtt kvenfélag framsóknar stofnað Tvö félög framsóknarkvenna starfa nú í Kópavogi. Framsóknarfélagið Brynja var stofnað í gær af sextíu og einni konu sem gengu í Framsóknarfélagið Freyju, Félag framsóknarkvenna í Kópavogi, fyrir síðasta aðalfund félagsins. Aðalfundurinn var hins vegar úrskurðaður ólöglegur þar sem láðst hafði að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 18:48
Siv og Una María víki Siv Friðleifsdóttur og Hansínu Björgvinsdóttur var ekki boðið á stofnfund Brynju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi. Óskað er eftir undanþágu til að félagið geti sent fulltrúa á flokksþing og farið fram á að Siv og Una víki sæti úr landsstjórn á meðan fjallað er um málið. Innlent 13.10.2005 18:48
Gleðitár runnu í Palestínu Gleðitár runnu um gervalla Palestínu í dag þegar fimm hundruð palestínskir fangar sneru aftur til síns heima úr ísraelskum fangelsum. Lausn fanganna er hluti af nýsamþykktu vopnahléi Ísraela og Palestínumanna. Erlent 13.10.2005 18:48
Siv undrast að vera ekki boðið Nýtt félag framsóknarkvenna í Kópavogi var stofnað í gær. Að því félagi standa konurnar sem nýlega reyndu að hrifsa til sín völdin í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi. Oddvita flokksins í kjördæminu, Siv Friðleifsdóttur, var ekki boðið á fundinn og undrast hún það. Innlent 13.10.2005 18:48
Ágreiningur á bak við vinarþelið Vinsemd og friður svífur yfir vötnum á ferðalagi Bush Bandaríkjaforseta í Evrópu, enda er tilgangurinn að styrkja tengslin á Atlantshafsásnum eftir erfið misseri. En fréttamaður Stöðvar 2 komst að því að hátíðarbragur og tignarlæti duga ekki til að dreifa athyglinni frá grundvallarágreiningi stórveldisins og stækkandi Evrópusambands. Erlent 13.10.2005 18:48