Stj.mál
88 89 90 91 92 93 94 95 96 … 187 ›
Hagsmunir Írana á oddinum Íranar munu halda áfram kjarnorkuviðræðum við Evrópusambandið með hagsmuni sína að leiðarljósi. Þetta sagði nýkjörinn forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, á blaðamannafundi í dag. Aðspurður sagði forsetinn einnig að hann sæi enga þörf á sérstökum viðræðum við Bandaríkjamenn um kjarnorkuframleiðslu þjóðar sinnar. Erlent 13.10.2005 19:25
Ekki áfall segir bæjarstjóri Íbúar Seltjarnarness höfnuðu skipulagsáformum bæjaryfirvalda á Hrólfsstaðamel og Suðurströnd í íbúakosningu í gær. Bæjarstjóri segist ekki líta á þetta sem áfall fyrir bæjaryfirvöld, þrátt fyrir að þau hafi viljað stefna í hina áttina. Innlent 13.10.2005 19:25
Kosið um skipulagsmál á Nesinu Seltirningar kjósa í dag um skipulagsmál á Hrólfskálamel og Suðurströnd. Valið stendur á milli tveggja tillagna sem nefndar eru tillögur H og S. Samkvæmt tillögu H er gert ráð fyrir gervigrasvelli og blandaðri byggð á Hrólfskálamel, þar sem fyrirtæki er nú, en íbúðabyggð á Suðurströnd fyrir neðan Valhúsaskóla fyrir um 350 íbúa. Í tillögu S er þessu öfugt farið, þ.e. gert er ráð fyrir að gervigrasvelli fyrir neðan Valhúsaskóla en byggð á Hrólfskálamel fyrir um 240 íbúa. Innlent 13.10.2005 19:25
Óvænt kosningaúrslit í Íran Harðlínumenn ráða nú öllu í Íran eftir að hinn íhaldssami frambjóðandi, Ahmadinejad, vann óvæntan en afgerandi sigur í forsetakosningum. Þegar hann var skipaður borgarstjóri í Teheran 2003 var hann nánast óþekktur og í upphafi kosningabaráttunnar nú hafði það lítið breyst. Erlent 13.10.2005 19:25
Hvalveiðisinnar guldu afhroð Hvalveiðisinnar guldu afhroð á fundi alþjóðahvalveiðiráðsins sem lauk í Suður-Kóreu í morgun. Þó að nafnið gefi til kynna að þar sé á ferðinni ráð sem hafi umsjón með veiðum, er meirihluti aðildarríkjanna á því að friða hvali með öllu. Erlent 13.10.2005 19:25
Vill kosningar um stækkun álvers Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust. Innlent 13.10.2005 19:25
Heilsugæslan skilaði afgangi Rekstur Heilsugæslunnar í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsumdæmi skilaði 40,7 milljóna króna afgangi miðað við fjárheimildir á árinu 2004. Svarar það til 1,4 prósenta af heildarútgjöldum stofnananna á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilsugæslunni. Þar segir enn fremur að afgangurinn lækki uppsafnaðan halla frá liðnum árum um 13 prósent. Innlent 13.10.2005 19:25
Fjárdráttarmáli vísað til lögreglu Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna gruns um fjárdrátt starfsmanns Reykjavíkurborgar úr heimilissjóði íbúa á einu þeirra heimila sem ætlað er fötluðum. Þar segir að undanfarið hafi farið fram rannsókn af hálfu Reykjavíkurborgar, meðal annars til þess að athuga hvort tilefni væri til að vísa málinu til lögreglu. Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt að vísa málinu til lögreglu til frekari rannsóknar. Innlent 13.10.2005 19:25
Samið um þróunarsamvinnu Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg landsins, í morgun. Samningurinn er gerður til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna. Þetta er fyrsta þróunarverkefni Íslands utan Afríku. Innlent 13.10.2005 19:24
Aðgerðir til hagræðingar í Háskólanum á Akureyri Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur samþykkt að ráðast í aðgerðir til að draga úr rekstrarkostnaði þar sem fyrir liggur að fjárveitingar nægja ekki til að greiða þann kennslukostnað sem núverandi námsframboð leiðir af sér. A.m.k. 40 milljónir króna á ári að jafnaði skortir til að endar nái saman og hefur verið skipaður sérstakur starfshópur sem fara á yfir rekstrarkostnað og endurskipulagningu deilda. Innlent 13.10.2005 19:25
Samið um vernd fjárfestinga Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra undirritaði í dag gagnkvæman samning Íslands og Mexíkós um vernd fjárfestinga. Fjárfestingarsamningurinn tryggir jafnréttis- og bestu kjör fyrir íslenska fjárfesta í Mexíkó og öfugt. Ráðherrann hefur undanfarna daga farið fyrir sendinefnd íslenskra athafnakvenna í Mexíkó. Fyrir hönd Mexíkó undirritaði samninginn Fernando Canales efnahagsmálaráðherra. Innlent 13.10.2005 19:25
Lítill árangur í Ulsan Fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Ulsan í Suður-Kóreu lauk í dag með litlum árangri. Hvorki gekk né rak að taka ákvarðanir eða marka nýja stefnu og er staðan því óbreytt. Erlent 13.10.2005 19:25
Varnarviðræður innan nokkurra daga Innan fárra daga hefjast viðræður um framtíð varnarsamstarfs Íslendinga og Bandaríkjamanna í Washington eftir langa bið. Ekki er þó ljóst hvað á að ræða þar sem Bandaríkjamenn hafa ekki ákveðið hver framtíð stöðvarinnar á að verða. Innlent 13.10.2005 19:25
Fylgi Framsóknar fimm prósent Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er minna en fimm prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Í könnuninni mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða átta og hálfu prósenti á landsvísu sem er minna en helmingur af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum. Innlent 13.10.2005 19:25
Hugsanlegt að áminna forstöðumenn Fjármálaráðherra segir að til greina komi að áminna forstöðumenn stofnana, sem fara fram úr á fjárlögum, en ekki að frysta launagreiðslur til þeirra, eins og lagt er til í skýrslu Ríkisendurskoðanda. Innlent 13.10.2005 19:25
Engin skömm fyrir ESB Tony Blair segir enga skömm felast í því fyrir Evrópusambandið að fara í gegnum endurnýjun, nú þegar nærri fimmtíu ár séu liðin frá stofnun þess. Forsætisráðherrann sagði í morgun að endurskilgreina verði sambandið í grundvallaratriðum. Erlent 13.10.2005 19:24
Afgangur en ekki halli Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mótmælir harðlega framsetningu Fréttablaðsins síðastliðinn þriðjudag þar sem sagði í fyrirsögn að ráðuneyti hans hefði farið alls um þrjá miljarða króna fram úr fjárlögum árin 1999 til 2003. Innlent 13.10.2005 19:24
Meiri lausatök í góðu árferði Þegar vel árar eru meiri lausatök á fjármálastjórn en ella að mati Davíðs Oddssonar, starfandi forsætisráðherra, sem telur margt til í gagnrýni Ríkisendurskoðunar á framkvæmd fjárlaga. Innlent 13.10.2005 19:24
Forkastanlegar ábendingar Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir ábendingar Ríkisendurskoðunar um að breyta þurfi lögum um réttindi og skyldur, svo frysta megi launagreiðslur starfsmanna þeirra stofnana sem fari fram úr fjárlagaheimildum, vera forkastanlegar. Innlent 13.10.2005 19:24
Friðarumleitanir efst á baugi Friðarumleitanir í Miðausturlöndum verða efst á baugi á fundi utanríkisráðherra átta stærstu iðnríkja heims sem hófst í Lundúnum í morgun. Fundurinn fylgir í kjölfar heimsóknar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Miðausturlanda en líklegt þykir að áform Ísraela um brottflutning frá Gaza-svæðinu verði aðallega rædd. Innlent 13.10.2005 19:24
Grunaðir um brot á kosningalögum Nærri þrjátíu Íranar hafa verið handteknir vegna gruns um brot á kosningalögum í síðustu viku. Mönnunum er flestum gefið að sök að hafa dreift áróðri á geisladiskum og á öðru tölvutæku formi en það er ólöglegt í Íran að hafa uppi órökstuddar dylgjur í pólitískum tilgangi í aðdraganda kosninga. Síðari umferð kosninganna fer fram á morgun. Erlent 13.10.2005 19:24
Blair: ESB verði endurskilgreint Það verður að endurskilgreina Evrópusambandið í grundvallaratriðum. Þetta sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á fundi með Evrópuþinginu í morgun. Erlent 13.10.2005 19:24
Krefjast afsagnar Lahouds forseta Sigurvegarar nýafstaðinna þingkosninga í Líbanon krefjast þess að Emile Lahoud, forseti landsins, segi starfi sínu lausu. Flokkurinn er andsnúinn Sýrlendingum og forsvarsmenn hans segja Sýrlendinga bera ábyrgð á morðinu á fyrrum leiðtoga kommúnista nú í vikunni. Erlent 13.10.2005 19:24
Forseti hafi beitt úreltu ákvæði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, með sín sérstöku tengsl við Stöð 2, beitti úreltu lagaákvæði í þágu fyrirtækja tengdum Baugi og vann eitthvert mesta skaðaverk sem unnið hefur verið íslenskum almenningi, segir Davíð Oddsson. Pólitíkin hér á landi hafi þannig ekki reynst Jóni Ásgeiri Jóhannessyni illa líkt og skilja megi af viðtali við <em>BBC</em>. Innlent 13.10.2005 19:24
Þróunarsamvinna við Srí Lanka Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, í dag. Samningurinn er til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna. Innlent 13.10.2005 19:24
Refsingar fyrir framúrkeyrslu Ríkisendurskoðun leggur til að greiðslur til ríkisstofnana sem fara verulega fram úr fjárheimildum verði frystar þar til gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana. Fjármálaráðherra er þessu ósammála. Innlent 13.10.2005 19:24
Peningar hrannast upp hjá öðrum Á sama tíma og rekstrarhalli margra ríkisstofnana hleðst upp ár frá ári vegna útgjalda umfram heimildir í fjárlögum hrannast upp peningar hjá öðrum ríkisstofnunum sem ár eftir ár fá fjárveitingar langt umfram fjárþörf. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu Ríkisendurskoðanda um framkvæmd fjárlaga. Innlent 13.10.2005 19:24
Ágúst fagnar niðurstöðunni Nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar fagnar niðurstöðu framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um að ekkert hafi verið málum blandið varðandi kosningar á landsfundi flokksins. Hörð gagnrýni kom fram á varaformannskosningarnar á landsfundinum. Innlent 13.10.2005 19:24
Stefán Jón formaður borgarráðs Stefán Jón Hafstein var í dag kjörinn formaður borgarráðs og mun hann gegna embættinu til loka kjörtímabilsins. Hann tekur við af Alfreð Þorsteinssyni sem hefur verið formaður ráðsins frá árinu 2003. Björk Vilhelmsdóttir var kjörinn varaformaður. Stefán Jón var kjörinn í borgarstjórn 2002 og er hann formaður Menntaráðs og Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar. Innlent 13.10.2005 19:24
Ahern og Davíð ræddust við Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Dermot Ahern, utanríkisráðherra Írlands og sérlegur fullrúi Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hittust að máli í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis. Ahern er staddur hér á landi til að ræða við íslensk stjórnvöld um fyrirhugaðar endurbætur á Sameinuðu þjóðunum. Innlent 13.10.2005 19:24