Handbolti

Guðjón Valur í ham gegn gamla liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur var í miklu stuði í kvöld.
Guðjón Valur var í miklu stuði í kvöld. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 11 mörk þegar Rhein-Neckar Löwen rústaði Gummersbach, 34-20, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Með sigrinum fóru Ljónin upp fyrir Kiel og í 2. sæti deildarinnar. Löwen er aðeins stigi á eftir toppliði Flensburg.

Eins og áður sagði skoraði Guðjón Valur 11 mörk, þar af eitt úr vítakasti. Hann var markahæstur á vellinum og fór ansi illa með sitt gamla lið.

Andy Schmid, leikstjórnandi Löwen, var einnig frábær í leiknum en hann skoraði níu mörk og gaf sex stoðsendingar.

Alexander Petersson hafði hægt um sig og skoraði aðeins eitt mark í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×