Fréttir
102 103 104 105 106 107 108 109 110 … 334 ›
Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Tómas Guðbjartsson læknir er í óðaönn að reyna komast heim til fjölskyldunnar fyrir jólin. Hann segir ekkert ferðaveður vera á Vestfjörðum en að hans sögn hefði hann verið allur ef hann hefði verið mínútu fyrr á ferðinni þar sem að snjóflóð féll við Skorarnúp rétt áður en hann keyrði fram hjá fjallinu. Innlent 23.12.2024 18:39
Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fylgjumst við með fyrsta fundi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem segir að ekki verði mikið hróflað við fjárlögum næsta árs enda forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu og vöxtum. Dómsmálaráðherra tjáir sig um ágreining hjá embætti ríkissaksóknara. Innlent 23.12.2024 18:00
Grunur um alvarlega misþyrmingu barna 160 börnum var bjargað af lögreglu frá gyðingslegum sértrúarsöfnuði í Gvatemala. Yfirvöld grunar að meðlimir söfnuðsins hafi beitt börnin alvarlegu ofbeldi. Erlent 23.12.2024 16:55
Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Skoðanir fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins á nýjum ríkisstjórnarsáttmála virðast mjög ólíkar. Guðrún Hafsteinsdóttir segir nýja sáttmálann keimlíkann sáttmála fráfarandi ríkisstjórnar á meðan Bjarni Benediktsson segir málefnin hafa fuðrað upp í loft. Innlent 23.12.2024 16:10
Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Icelandair sá ekki annað í stöðunni en að aflýsa flugferðum innanlands í dag vegna vindagangs og ókyrrðar í lofti. Eina flugferð dagsins er frá Egilsstöðum klukkan fjögur. Innlent 23.12.2024 15:09
Segir Grænland ekki falt Formaður landsstjórnar Grænlands segir landið ekki til sölu eftir að Donald Trump verðandi Bandaríkjaforseti vakti aftur máls á eignarhaldi eyjunnar. Formaður varnarmálanefndar danska þingsins segir Bandaríkjaher ekki geta verið áfram á Grænlandi reyni Bandaríkjastjórn að komast yfir danskt yfirráðasvæði. Erlent 23.12.2024 15:01
Hvalveiðilögin barn síns tíma Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir hvalveiðilögin barn síns tíma. Hún geri sér grein fyrir því að hvalveiðar séu mikið hitamál. Innlent 23.12.2024 14:51
Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segist munu greiða atkvæði með frumvarpi ríkisstjórnar um samþykkt bókunar 35 þegar til þess kemur. Innlent 23.12.2024 14:39
Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var í stuttu viðtali eftir að starfsstjórn Bjarna Benediktssonar skilaði inn lyklunum og stjórn Kristrúnar Frostadóttir tók við á Bessastöðum. Innlent 23.12.2024 14:07
Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar hafi ráðherrar farið yfir stefnuyfirlýsingu sína og skipulagt hvernig þau hefja og skipuleggja störf sín í ráðuneytunum. Þau hafi þurft að ræða heilmikið til ríkisstjórnin geti stillt saman strengi sína. Innlent 23.12.2024 13:11
Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Nýr dómsmálaráðherra segir ljóst að sú staða sem uppi er hjá embætti ríkissaksóknara vegna Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara geti ekki staðið í langan tíma. Ráðherra segist átta sig á að það sé á ábyrgð hans að liðka þarna til. Innlent 23.12.2024 13:06
„Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Varasamt ferðaveður er víða á landinu í dag, og verður einkum norðan- og norðaustanlands í kvöld. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst fram yfir hádegi og vegum gæti verið lokað án fyrirvara. Þá er spáð jólastormi á sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og hinn. Innlent 23.12.2024 11:58
Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Í hádegisfréttum fjöllum við um veðurspánna sem er ekki sérstaklega glæsileg yfir jólin. Innlent 23.12.2024 11:42
Brást of harkalega við dyraati Kona hefur verið sakfelld fyrir að draga ungan dreng sem hafði gert dyraat hjá henni frá leikvelli og upp tröppur að heimili hennar gegn vilja drengsins. Konan sagði háttsemina eins og þá sem viðhöfð sé í grunnskóla þar sem hún starfi en héraðsdómur sagði aðstæður ekki samanburðarhæfar. Innlent 23.12.2024 11:27
Inga tók jólalag á fyrsta fundi Fyrsti ríkisstjórnarfundur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var haldinn nú í morgun. Glatt var á hjalla og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, var kát og brast hún í söng. Innlent 23.12.2024 11:12
Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Gurún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, skipaði á föstudag Berglindi Svavarsdóttur lögmann í embætti dómanda við Endurupptökudóm frá og með 23. desember 2024 til og með 31. janúar 2026. Innlent 23.12.2024 10:20
Flugferðum aflýst Öllum flugferðum innanlands í morgun hefur verið aflýst vegna veðurs. Fljúga átti vélum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar fyrir hádegi auk flugvéla frá Mýflugi á Hornafjörð og Norlandair á Bíldudal. Innlent 23.12.2024 10:19
Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Eitt lítið snjóflóð féll niður í Raknadalshlíð í morgun. Vegur að Patreksfirði er lokaður. Innlent 23.12.2024 10:14
Egill Þór er látinn Egill Þór Jónsson, teymisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er látinn. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut í návist fjölskyldu og vina föstudagskvöldið 20. desember. Hann var 34 ára gamall og hafði undanfarin ár háð harða baráttu við krabbamein. Innlent 23.12.2024 09:44
Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Eignarhald og yfirráð yfir Grænlandi eru algerlega nauðsynleg, að mati Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Hann setti málið aftur á dagskrá þegar hann tilnefndi vin Elons Musk sem næsta sendiherra Danmerkur. Fyrri hugmyndir Trump um kaup á Grænlandi voru hlegnar út af borðinu. Erlent 23.12.2024 09:22
Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra segjast spenntar takast á við verkefnum nýrrar ráðuneyta. Áherslumál þeirra eru til dæmis að efla læsi, íslenskukennslu fyrir innflytjendur og löggæslu. Þær segja það hafa verið rætt sérstaklega í ríkisstjórn að efla samvinnu og finna sameiginlega snertifleti. Innlent 23.12.2024 09:02
Flæddi inn í hús á Arnarnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað inn eftir að vatn tók að flæða inn í hús á Arnarnesi í Garðabæ snemma í morgun. Stífla hafði þar myndast í götunni og flæddi vatn inn í húsið. Innlent 23.12.2024 07:43
Ný ríkisstjórn fundar í dag Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun í dag eiga sinn fyrsta formlega fund sem ríkisstjórn. Fundurinn hefst klukkan 9.30 og verður á Hverfisgötu þar sem ríkisstjórnin hefur átt sína reglulegu fundi síðustu vikur. Innlent 23.12.2024 07:39
Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Gul viðvörun er í gildi á stórum hluta landsins og víða hvasst og hált. Þrengsli eru lokuð og Krýsuvíkurvegur. Allt norðanvert Snæfellsnes er ófært og fjöldi vega á Vesturlandi á óvissustigi og verða það þar til klukkan 21 í kvöld. Veður 23.12.2024 06:52
Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Maður er í haldi lögreglunnar í New York grunaður um að hafa brennt konu til bana í neðanjarðarlest í borginni í gær. Erlent 23.12.2024 06:45
„Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari furðar sig á ákvörðun Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara að lýsa hann vanhæfan þrátt fyrir að ráðherra hafi í haust ekki orðið við beiðni hennar um að leysa hann frá störfum. Helgi Magnús segir þetta farið að líkjast einelti frekar en löglegri stjórnsýslu. Hann ætli að skoða sína möguleika en muni ekki taka ákvörðun um framhaldið fyrr en eftir áramót. Innlent 23.12.2024 06:37
Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Tilkynnt var um tvær líkamsárásir til lögreglunnar í nótt. Önnur átti sér stað í Breiðholti og hin í Grafarholti. Báðar eru í rannsókn hjá lögreglu samkvæmt dagbók lögreglunnar. Ekki kemur fram hvort einhver hafi verið handtekinn en samkvæmt dagbókinni gistu tveir í fangaklefa lögreglunnar í nótt. Innlent 23.12.2024 06:11
Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Ellefu ráðherrar tóku við lyklum að ráðuneytum sínum í dag. Það var gert ýmist með handaböndum eða faðmlögum. Í dag tók daginn að lengja á nýjan leik sem segja má að sé merki um nýtt upphaf þegar ráðherrar tóku við lyklum. Innlent 23.12.2024 00:30
Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Segja má að veðurspáin fyrir morgundaginn sé í ömurlegri kantinum, rigning og rok. Veðurfræðingur spáir þó hvítum jólum um mest allt land en spáin er varasöm á aðfangadag og viðbúið að færð verði slæm í einhverjum landshlutum. Gular veðurviðvaranir eru í gildi um mest allt landið í nótt og í fyrramálið og almannavarnir hvetja vegfarendur til að sýna aðgát þar sem færð getur spillst snögglega. Innlent 23.12.2024 00:10
Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu. Innlent 22.12.2024 22:21