
Albumm

Frumsýning - Manic State með glænýtt lag og myndband!
Haraldur Már og Friðrik Thorlacius skipa dúóið Manic State og eru þeir heldur betur að þruma sér inn í sviðsljósið en í dag gefa drengirnir út nýtt lag og myndband. Lagið ber heitið Heltekinn og er það Æsir sem ljáir laginu rödd sína.

Speglar hið íslenska í hinu alþjóðlega
Hiatus Terræ er fyrsta plata Ara Árelíusar í fullri lengd. Á plötunni leitast Ari við að spegla hið íslenska í hinu alþjóðlega.

Mánudagsplaylisti Ísaks Morris
Tónlistarmaðurinn Ísak Morris hefur komið víða við og er á blússandi siglingu um þessar mundir. Fyrir skömmu sendi hann frá sér lagið You Light Up The Sky sem hefur fengið frábærar viðtökur.

Þolendur ofbeldis þurfa að þroskast hratt
Nýja, Íslenska rokkhljómsveitin Tragically Unknown hefur gefið út sitt fyrsta lag, Villain Origin Story.

Eitís skotin gleði í bland við gljáa 21. aldarinnar
Heiðrún Anna, sem margir þekkja úr hljómsveitum á borð við Cigarette og Gloss, býður upp á draumkennt og dáleiðandi syntapopp á sinni fyrstu sólóplötu, Melodramatic.

„Heilbrigðiskerfið hunsar okkur“
Tónlistarmaðurinn Orðljótur var að senda frá sér lagið Bylting.

Rekst á við hefðbundnar hugmyndir um karlmennsku
Stelpustrákur er nýtt lag með Sveini Guðmundssyni. Af hverju er það ekki eins kúl að fíla Star Trek og Liverpool?

Mánudagsplaylisti Írisar Rós
Tónskáldið og söngkonan Íris Rós hefur samið mikið af lögum og tónverkum, meðal annars kórverk, strengjakvartetta, blásturs og hljómsveitarverk, einnig sönglög, popp og jazz.

Átti ekki að lifa af en gefur nú út plötu
Svavar greindist nýlega með hjartagalla eftir að hafa fengið blóðtappa í heilann og eftir mikla óvissu um orsök ferðir hans á spítalans fékk hann þau svör að að hann ætti ekki miklar líkur á að lifa af veikindinn. Svavar hefur alltaf verið heilbrigður og mikill útivistarmaður og hafði verið í fjallgöngum, stundað sund og líkamsrækt og var honum því verulega brugðið við þessar fréttir.

Einkatónleikar og NFT – Kig & Husk safnar fyrir vínyl-útgáfu á Karolina Fund
KILL THE MOON, fyrsta breiðskífa KIG & HUSK kom út um mitt síðasta ár (2021) og fékk um leið frábærar viðtökur tónlistargagnrýnenda auk þess sem hún hlaut tilnefningu til Íslensku Tónlistarverðlaunanna sem besta plata ársins 2021.

Varð fljótt vinsælasti tónlistarmaður landsins
Ásgeir Trausti heldur upp á tíu ára afmæli plötunnar Dýrð í dauðaþögn með stórtónleikum í Eldborg 27. ágúst.

Mánudagsplaylisti Júlíönu Liborius
Leikkonan og Leikstjórinn Júlíana liborius hefur marga hatta og hefur svo sannarlega komið víða við sem allt tengist sviðslistum á einn eða annan hátt.

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted - Íslenskt indí, KUSK og veisla á Sirkus!
Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Þórhallur Þórhallsson með glænýja uppistandssýningu
Þann 12. Maí næstkomandi mun Þórhallur Þórhallsson frumsýna glænýja uppistandssýningu í Tjarnarbíó sem einfaldlega kallast „Þórhallur“

Undir áhrifum frá grískri tónlist og hljóðfærinu bouzouki
Nú er komin út smáskífan Crete sem inniheldur tvö ný lög eftir Smára Guðmundsson. Lögin voru samin þegar Smári var út á Krít að aðstoða við uppsetningu á festivali sem verður á Krít í apríl.

„Meðvirkni og þráhyggja réðu för“
Tónlistarkonan Dagbjört Rúriksdóttir eða DIA var að senda frá sér glænýtt lag ásamt textamyndbandi sem heitir Rauðu Flöggin.

Það sjá ekki allir það fallega sem í þeim býr
Í dag þann 1. apríl sendir tónlistarkonan Alyria frá sér lagið Wish You Could.

Vísar í persónu Tove Jansson úr Múmínálfunum
Hljómsveitin Milkhouse hefur sent frá sér nýtt lag. Lagið heitir Snorkstelpan og er önnur smáskífa af væntanlegri plötu sveitarinnar en Milkhouse gaf einnig út lagið Dagdraumar vol. 7 síðastliðið sumar.

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted - nýtt og ferskt tónlistarfólk allsráðandi!
Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Útgáfurisinn Universal gefur út íslenska kórtónlist
Útgáfurisinn Universal hefur nýverið gefið út plötuna Vökuró í samstarfi við dömukórinn Graduale Nobili. Platan er gefin út undir formerkjum Decca plötuútgáfu Universal. Í þessu felst gríðarlega mikil útrás fyrir íslenska kórtónlist, sem sífellt er að verða vinsælli erlendis.

„Ekki fallegar tilfinningar en þær eru mannlegar og við þekkjum þær öll“
Una Torfadóttir byrjaði að semja lög um ástarsorg löngu áður en hún upplifði hana sjálf. Sem barn skrifaði hún dramatíska texta á ensku og söng af mikilli innlifun en þegar unglingsárin hófust fór Una að skrifa um sínar eigin upplifanir og þá tók móðurmálið við.

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar fær 40 milljón króna innspýtingu
Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar og ÚTÓN (Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar) kynna nýtt átaksverkefni þar sem íslenskt tónlistarfólk getur sótt sérstaklega um framleiðslu á kynningarefni í sjóðinn. Þetta kemur til viðbótar við ferða- og markaðsstyrki sem þegar er hægt að sækja í sjóðinn.

„Flest lögin túlka ákveðið rótleysi“
Fyrir skömmu kom út lagið Finding Place, titillag stuttskífu sem tónlistarkonan MIMRA sendir frá sér þann 1. apríl næstkomandi. MIMRA fylgir plötunni úr hlaði með útgáfu- og upptöku tónleikum í Salnum í Kópavogi ásamt hljómsveit sama kvöld og platan kemur út.

„Þetta snýst um að skemmta sér og vera í augnablikinu“
Hljómsveitin ArnarArna gefur út í dag nýjustu smáskífu sína, Water and Radio. Það markar fjórðu smáskífuna af væntanlegri breiðskífu með sama nafni.

Dagsetningar fyrir 13 ára afmæli Extreme Chill hátíðarinnar eru lentar!
Dagsetningar fyrir 13 ára afmæli Extreme Chill hátíðarinnar voru að lenda. 6.-.9 Október 2022 frekari upplýsingar, Dagskrá og Early Bird miðasala hefst 1 Maí.

Stefnir á að verða dans slagari sumarsins!
Séra Bjössi og Háski gefa út lagið Drive í dag, föstudaginn 18.mars en lagið stefnir á að verða dans slagari sumarsins!

Indí smellur um ástina og óttann
Tónlistarmaðurinn Elvar gaf í dag út lagið Heartbeat Away From Heartbreak. Lagið er kraftmikið indí popplag en textinn fjallar um óttann við að missa ástina og hamingjuna.

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted – Popplög og Britpoppari!
Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Brautryðjandi með hljóði sínu
Alt-pop tónlistakonan OWZA (Ása Margrét Bjartmarz) var að gefa út sı́na fyrstu EP-plötu, Zzz. Með dökkum tónum, þungum bassa og áhrifum frá alt-poppi, r&b, ambience og trap, tekur ‘Zzz’ hlustandann ı́ ferðalag um að tı́na sjálfum sér, svefnlausar nætur og miskunnarlausa hegðun og á sama tı́ma býður hún þér ı́ annan heim fullan af mjúkum skýjum á fjólubláum himni.

Er sumar hittarinn fæddur?
Tómas Welding var að gefa út lagið Taste og er það unnið í samstarfi með Pálma Ragnari Ásgeirssyni.