Innlent „
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 334 ›
„Mér finnst þetta bara ömurlegt“ „Ég skil íbúa mjög vel og mér finnst þetta bara ömurlegt,“ sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, um risavaxið iðnaðarhúsnæði sem risið er í Breiðholti, þétt upp við fjölbýlishús. Innlent 13.12.2024 06:53
„Þetta er bara komið til að vera“ Nemendur með þroskahömlun og annars konar fötlun útskrifuðust úr splunkunýju námi í dag frá ellefu símenntunarmiðstöðvum um allt land. Nemendur sem ræddu við fréttastofu segjast hafa lært mikið og námið hafa verið skemmtilegt. Nokkrir eru þegar búnir að fá atvinnuviðtöl og -tilboð. Innlent 12.12.2024 23:27
Dómurinn sé vonbrigði og sendi röng skilaboð Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir dóm yfir manni í manndrápsmáli vera vonbrigði, og veltir fyrir sér hvort dómurinn hefði verið þyngri ef ekki væri um heimilisofbeldi að ræða. Innlent 12.12.2024 22:02
Tveir mánuðir fyrir brot gegn barni í búningsklefa Landsréttur hefur staðfest dóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa gengið inn í búningsklefa kvenna, gert athugasemdir um líkama nakins barns og girt niður um sig fyrir framan það. Innlent 12.12.2024 21:02
Bið eftir aðgerð vegna hálkuslyss óboðleg af hálfu kerfisins Hjúkrunarfræðingur sem þarf að bíða í allt að tvær vikur eftir aðgerð vegna alvarlegs beinbrots segir innviði heilbrigðiskerfisins ekki bera það sem þarf. Hún er meðal fjölda fólks sem beinbrotnaði í hálkuslysi í síðustu viku og segir ástandið á heilbrigðiskerfinu óboðlegt. Innlent 12.12.2024 20:46
Fyrrverandi þingmenn sækja um sendiherrastöðu Birgir Þórarinsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Gísli Rafn Ólafsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrverandi þingmenn Pírata eru í hópi 52 umsækjenda sem sótt hafa um sendiherrastöðu. Innlent 12.12.2024 20:36
Grautfúl að tapa forsetakosningunum Katrín Jakobsdóttir segist hafa orðið grautfúl eftir að hafa tapað forsetakosningunum því hún hafi að sjálfsögðu farið í þær til að vinna kosningarnar. Í Samtalinu með Heimi Má á Stöð 2 í kvöld segist hún hafa fundið til djúprar sorgar þegar Vinstri græn félllu af þingi í nýafstöðnum alþingiskosningum. Innlent 12.12.2024 19:45
Dynjandisheiði boðin út með verklokum haustið 2026 Lokaáfanginn í uppbyggingu Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði verður boðinn út á morgun, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Til stóð að bjóða verkið út mun fyrr og sökuðu talsmenn Vestfirðinga stjórnvöld um svik fyrr á árinu þegar því var slegið á frest. Innlent 12.12.2024 19:38
Segir fréttir af pólitísku andláti sínu stórlega ýktar Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir orðróm um að hann ætli að segja skilið við stjórnmálin. Jafnframt segist hann ekki ætla að fara að starfa hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Innlent 12.12.2024 19:36
Grautfúl eftir að hafa tapað forsetakosningum Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir dóm yfir manni, sem varð sambýliskonu sinni að bana, mikil vonbrigði. Hún veltir fyrir sér hvort dómurinn hefði verið þyngri ef ekki hefði verið um heimilisofbeldi að ræða. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 12.12.2024 18:11
Staðfesta dóm manns sem nauðgaði konu þremur dögum eftir afplánun Landsréttur staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm Vilhelms Norðfjörð Sigurðssonar fyrir að nauðga fyrrverandi unnustu sinni og fyrir fleiri brot gegn henni. Innlent 12.12.2024 18:09
Lögreglumanni ekki gerð refsing átta árum eftir að hann réðst á fanga Landsréttur hefur staðfest sakfellingu lögreglumanns sem var ákærður fyrir líkamsárás gegn fanga í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu þann 16. maí 2016. Honum er þó ekki gerð refsing í málinu. Innlent 12.12.2024 17:23
Lögreglan lýsir eftir Áslaugu Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu Helgu B. Traustadóttur. Áslaug fór að heiman frá sér á Tálknafirði síðastliðinn sunnudag. Innlent 12.12.2024 17:04
Öllum starfsmönnum sagt upp og verkefnum úthýst til einkafyrirtækis Allir réttindagæslumenn og annað starfsfólk Réttindagæslu fatlaðs fólks missa vinnuna um áramótin þegar störf þeirra verða lögð niður. Hluta starfseminnar á að færa til nýrrar Mannréttindastofnunar sem ekki tekur til starfa fyrr en í vor en þangað til hefur starfsfólk einkafyrirtækis verið fengið til að sinna verkefnum réttindagæslunnar sem ekki flytjast til sýslumanns. Yfirmaður réttindagæslunnar óttast að rof verði á þjónustu við fatlað fólk á meðan kerfisbreytingarnar ganga í gegn. Innlent 12.12.2024 16:45
Máli Sigurlínar á hendur Ríkisútvarpinu vísað frá Máli Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur, sem flutti táknmálsfréttir í sjónvarpi í 36 ár, á hendur Ríkisútvarpinu hefur verið vísað frá dómi. Hún vildi fá staðfest að vinnusamband hennar við RÚV hefði verið launþegasamband en ekki verktakavinna. Innlent 12.12.2024 15:28
Síðasti séns að senda inn tilnefningar til manns ársins Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna mann ársins 2024 nú um áramótin. Rúmlega fjögur þúsund nöfn hafa borist frá því að opnað var tilnefningar 2. desember síðastliðinn. Innlent 12.12.2024 14:53
Upplifði djúpa sorg þegar Vinstri græn duttu af þingi Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi veitti sitt fyrsta viðtal eftir forseta- og alþingiskosningar í Samtalinu hjá Heimi Má í dag sem sýnt verður á Stöð 2 klukkan 19:05 í kvöld. Hún segist hafa upplifað djúpa sorg þegar úrslit nýafstaðinna alþingiskosninga lágu fyrir. Innlent 12.12.2024 14:47
Leggja til styttri tímafresti og minni flækjur í orkumálum Starfshópur um endurskoðun á rammaáætlun um orkumál leggur til að tímafestir verði innleiddir til þess að ekki þurfi að líða meira en 24 mánuðir frá því virkjunarhugmynd er send Orkustofnun og þar til ráðherra leggur þingsályktunartillögu fyrir þingið. Innlent 12.12.2024 13:30
Skammaður af nefndinni og kærður til lögreglu Úrskurðarnefnd lögmanna hefur áminnt Ómar R. Valdimarsson fyrir margvísleg brot á siðareglum lögmanna í tengslum við mál ungs pars sem leitaði til hans til innheimtu flugbóta. Eitt brotið snýr að birtingu persónuupplýsinga um parið á Facebook. Parið hefur kært Ómar til lögreglu vegna birtingarinnar. Ómar mun leita til dómstóla til að fá úrskurðinum hnekkt. Innlent 12.12.2024 13:10
Fá milljarða frá ESB til að tryggja vatnsgæði á Íslandi Samband íslenskra sveitarfélaga auk nokkurra einstakra sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana taka þátt í verkefni sem miðar að því að tryggja vatnsgæði á Íslandi. Verkefnið hefur hlotið þrjá og hálfan milljarð króna í styrk frá Evrópusambandinu. Innlent 12.12.2024 13:01
Vilja að lyfjafræðingar geti ávísað lyfjum og apótek verði fyrsti viðkomustaður Lyfjafræðingar fá heimild til að ávísa ákveðnum lyfjum og apótek verða fyrsti viðkomustaður í veikindum samkvæmt tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra. Formaður Lyfjafræðingafélagsins segir lyfjafræðinga í apótekum lengi hafa beðið eftir þessu og tillögurnar í takti við það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Innlent 12.12.2024 13:00
Framkoma SVEIT sé „svívirðileg atlaga að réttindum launafólks“ Stjórn VR fordæmir atlögu atvinnurekenda innan SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, að réttindum og kjörum launafólks á Íslandi. Stjórn VR tekur heilshugar undir gagnrýni Eflingar og SGS á SVEIT og hvatningu um að sniðganga félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR en stjórn samþykkti ályktun um þetta í gær. Innlent 12.12.2024 12:54
Rekja bilanir á Víkurstreng til efnistöku úr ám Talið er líklegt að rekja megi rafmagnsbilanir á Víkurstreng til efnistöku í ám neðan við strenglögnina. Efnistakan er talin möguleg ástæða þess að mikil hreyfing kemst á árfarveg í vatnsveðri og leysingum líkt og var á sunnudaginn og mánudaginn og orsakaði rafmagnsleysi á svæðinu. Þá verður allt kapp nú lagt á að setja upp varanlegt varaafl í Vík. Innlent 12.12.2024 12:47
Mannleg mistök hafi valdið því að beiðni til borgarinnar týndist Lögfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar segist taka ábendingar Umboðsmanns Alþingis um aðgengi fólks að starfsfólki og þjónustu sviðsins alvarlega. Mannleg mistök hafi leitt til þess að gagnabeiðni frá borgara var ekki afgreidd í tvö ár. Innlent 12.12.2024 12:04
Vongóð um að íslenskir læknar erlendis muni snúa heim Klukkan ellefu á morgun mun liggja fyrir hvort að félagsmenn Læknafélags Íslands samþykki nýjan kjarasamning sem að félagið gerði við ríkið í lok nóvember. Formaður Læknafélagsins segist vongóð þó að sumir félagar hafi gagnrýnt samninginn en hún viðurkennir að sumu hafi verið fórnað við samningsgerðina. Innlent 12.12.2024 12:03
Seinagangur hjá borginni að mati Umboðsmanns Í hádegisfréttum fjöllum við um athugasemdir Umboðsmanns Alþingis við seinagang í svörum hjá Umverfis- og skilulagssviði borgarinnar. Innlent 12.12.2024 11:32
Yfir átján prósent íbúa á Íslandi eru innflytjendur Hátt í sjötíu þúsund íbúa á Íslandi voru innflytjendur samkvæmt gögnum Hagstofunnar sé miðað við 1. janúar á þessu ári. Það gera 18,2% allra íbúa landsins. Innflytjendum hefur þannig haldið áfram að fjölga á milli ára en í fyrra voru innflytjendur rétt tæplega 63 þúsund, eða 16,7% íbúa. Ljóst er að innflytjendum hefur fjölgað verulega á Íslandi undanfarin áratug en sé litið til ársins 2012 var hlutfall innflytjenda af heildarmannfjölda ekki nema 7,4%. Innlent 12.12.2024 10:52
Fækkar í þjóðkirkjunni en Siðmennt bætir mest við sig Meðlimum íslensku þjóðkirkjunnar hefur fækkað um 939 síðan 1. desember á síðasta ári. Mest fjölgaði í Siðmennt á sama tímabili, en einstaklingum utan trú- og lífsskoðunarfélaga fjölgar einnig. Innlent 12.12.2024 10:48
Réttað yfir manni sem er ákærður fyrir að brjóta gegn fatlaðri konu og syni hennar Aðalmeðferð yfir karlmanni sem er ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu og áreita unglingsson hennar og vinkonu sem eru einnig andlega fötluð hófst í gær. Réttarhöldin eru lokuð en maðurinn var verslunarstjóri þar sem konan starfaði við afgreiðslu. Innlent 12.12.2024 10:17
Þingflokkar funda hver í sínu lagi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funda hver í sínu lagi í hádeginu á Alþingi í dag. Stjórnarmyndunarviðræður halda einnig áfram. Formenn flokkanna hafa ekki fundað einar í morgun en munu mögulega gera það síðar í dag. Innlent 12.12.2024 10:15