Golf

Andri Már og Valdís Þóra leiða

Þriðja stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi hófst í gær á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Ungir kylfingar gáfu tóninn í karlaflokknum þar sem að Andri Már Óskarsson úr GHR á Hellu lék best allra á 68 höggum eða 3 höggum undir pari.

Golf

Enn bið eftir Tiger

Það gengur illa hjá kylfingnum Tiger Woods að koma sér í form og hann hefur nú neyðst til þess að draga sig úr AT&T-mótinu í næstu viku vegna meiðsla.

Golf

Stenson braut 7-járnið í bræðiskasti, myndband

Henrik Stenson var allt annað en ánægður með eitt högg hjá sér á lokadegi opna bandaríska meistaramótsins á sunnudaginn. Sænski kylfingurinn tók 7-járnið og braut járnskaftið á því en hann skar sig nokkuð illa á fingri við þær æfingar.

Golf

Golfskóli Birgis Leifs: Stöðugleiki í púttunum

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir jafnvægi í púttum og hvernig hægt er að þjálfa upp gott jafnvægi. Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari fer yfir æfingar með Birgi en farið er yfir þessi atriði í þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport.

Golf

Rory fékk fimm ára keppnisrétt á PGA mótaröðinni

Með sigrinum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi tryggði Norður-Írinn Rory McIlroy sér keppnisrétt á bandarísku PGA mótaröðinni næstu fimm árin. McIlroy reyndi fyrir sér á bandarísku PGA mótaröðinni í fyrra en ákvað að einbeita sér eingöngu að Evrópumótaröðinni fyrir þetta tímabil – en McIlroy leiddist einfaldlega lífið í Bandaríkjunum á meðan hann var þar.

Golf

Rory McIlroy græðir á tá og fingri

Norður-Írinn Rory McIlroy er "heitur“ á Bretlandseyjum þessa dagana eftir sigurinn á opna bandaríska meistaramótinu um helgina. Hinn 22 ára gamli kylfingur hefur dregið sig úr keppni á opna franska meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn enda er líf hans á hvolfi eftir fyrsta sigurinn á stórmóti. Vinsældir McIlroy eru gríðarlega og stórfyrirtæki keppast um að fá hann til samstarfs og telja margir að hann verði tekjuhæsti íþróttamaður Breta á allra næstu árum.

Golf

Búið að velja landsliðin í golfi

Ragnar Ólafsson, landsliðseinvaldur í golfi, er búinn að velja nokkur landslið í golfi fyrir komandi verkefni. Bæði fyrir fullorðinsmót sem og unglingamót.

Golf

Rory McIlroy í fjórða sæti heimslistans - Tiger í 17. sæti

Rory McIlroy er í fjórða sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á Opna bandaríska meistaramótinu í gær og hefur hinn 22 ára gamli Norður-Íri aldrei verið ofar á þessum lista. Luke Donald frá Englandi er enn efstur en hann hefur verið í efsta sætinu undanfarnar þrjár vikur.

Golf

Guðrún Brá og Björn Öder sigruðu í Leirdalnum

Þriðja stigamótið á Arion-stigamótaröð unglinga í golfi fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG um helgina og lék veðrið við keppendur. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili heldur sigurgöngu sinni áfram því hún vann á ný í 17-18 flokki stúlkna en Guðrún hefur einnig unnið eitt stigamót í keppni fullorðinna á Eimskipsmótaröðinni. Björn Öder Ólafsson úr GO sigraði í 17-18 ára flokki pilta og er þetta fyrsti sigur hans í þeim flokki.

Golf

Rory McIlroy:Það verður örugglega skálað í mörgum Guinnes

Rory McIlroy, sem sigraði með yfirburðum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi í gær, er næst yngsti sigurvegari stórmóts frá upphafi en hann er 22 ára gamall. Norður-Írinn lék frábært golf alla fjóra keppnisdagana og sigraði með 8 högga mun á -16. McIlroy þakkaði foreldrum sínum fyrir stuðningin í ræðu sem hann hélt á verðlaunaafhendingunni á Congressional í gær en það eru aðeins 70 frá því hann klúðraði lokadeginum á Mastersmótinu með eftirminnilegum hætti.

Golf

Rory McIlroy sigraði með fáheyrðum yfirburðum á US Open

Rory McIlroy frá Norður-Írlandi sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi með fáheyrðum yfirburðum og skrifaði hinn 22 ára gamli kylfingur marga kafla í metabókum golfíþróttarinnar. McIlroy var efstu alla fjóra keppnisdagana og hann setti mótsmet með því að leika á – 16

Golf

Mcllroy með átta högga forskot fyrir lokahringinn

Norður-Írinn Rory Mcllroy er með átta högga forskot á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Congressional-vellinum í Bethesda í Maryland-ríki. Mcllroy spilaði þriðja hringinn í dag á þremur höggum undir pari.

Golf

Rory McIlroy í metabækurnar eftir frábæran hring

Rory McIlroy setti mótsmet í dag á opna bandaríska meistaramótinu með því að leika á 66 höggum eða -5 á öðrum keppnisdegi stórmótsins. Hinn 22 ára gamli Norður-Íri er samtals á 11 höggum undir pari en þetta er í fyrsta sinn í 111 ára sögu mótsins sem kylfingur nær að komast 10 undir par vallar á öðrum hring. Fjölmargir kylfingar eiga eftir að hefja leik í dag en þessa stundina er hinn 22 ára gamli McIlroy með 8 högga forskot í efsta sæti á Congressional vellinum.

Golf

Tiger Woods er enn tekjuhæsti bandaríski íþróttamaðurinn

Þrátt fyrir að bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafi ekki sýnt mikla takta á golfvellinum á undanförnum mánuðum er hann enn tekjuhæsti bandríski íþróttamaðurinn. Í samantekt Forbes tímaritsins var Woods rúmlega 62 milljónir bandaríkjadala í tekjur á árinu 2010 eða rétt um 7,2 milljarða kr.. Þar af eru aðeins 2,2 milljónir í verðlaunafé eða 250 milljónir kr.

Golf

Ruglmyndband með kylfingum slær í gegn á Youtube

Bandarískir atvinnukylfingar hafa í gegnum tíðina ekki verið þekktir fyrir óhefðbundna hegðun utan vallar nema í undantekningartilfellum líkt og John Daly. Nýverið settu fjórir þekktir kylfingar saman tónlistarmyndband þar sem þeir bregða sér í hlutverk í "strákabandi“ og hefur tónlistarmyndbandið með The Golf Boys slegið í gegn á Youtube.

Golf

McIlroy byrjaði með látum á US open

Norður-Írinn Rory McIlroy byrjaði vel á opna bandaríska meistaramótinu í golfi en hann er á 6 höggum undir pari eftir fyrsta keppnisdaginn á Congressional vellinum. McIlroy fékk 6 fugla og lék aðrar holur á pari, alls 65 högg, og er hann með þriggja högga forskot.

Golf

Mickelson hefur fimm sinnum endað í öðru sæti

Phil Mickelson hefur aldrei náð að sigra á opna bandaríska meistaramótinu í golfi en hann hefur keppt alls 20 sinnum á þessu móti og mótið í ár er því það 21 sem hann leikur á. Mickelson segir að hann hafi látið sig dreyma um að sigra á þessu móti frá því hann var barn en hann er enn ekki hættur að láta sig dreyma þrátt fyrir að vera 41 árs gamall.

Golf

Adam Scott mætir til leiks með kylfusvein Tiger Woods

Ástralski kylfingurinn Adam Scott verður með einn þekktasta kylfubera heims á "pokanum“ á opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem hefst í dag. Steve Williams, sem hefur verið aðstoðarmaður Tiger Woods undanfarin ár, verður með Scott á mótinu og vonast Ástralinn til þess að hinn reynslumikli Williams geti aðstoðað sig við að landa sigri á stórmóti í fyrsta sinn.

Golf

Opnuðu verslunina vegna brennandi golfáhuga

Fyrir skemmstu bættist ný verslun við flóru golfverslana landsins, Golfskálinn í Mörkinni 3. Eigendurnir eru allir reynsluboltar í golfi, þeir Steinþór Jónasson, Ingibergur Jóhannsson og Hans Henttinen, sem var einn eigenda Nevada Bob á sínum tíma.

Golf

Guðjón og TInna sigruðu í Vestmannaeyjum

Guðjón Henning Hilmarsson úr GKG og Tinna Jóhannsdóttir úr GK sigruðu á öðru stigamóti ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi sem fram fór í Vestmannaeyjum um helgina. Þetta er fyrsti sigur Guðjóns á stigamótaröðinni en hann lék frábært golf á lokahringnum eða 65 höggum eða 5 höggum undir pari. Samtals lék Guðjóna -4 en Stefán Már Stefánsson úr GR varð annar á -2. Tinna lék á +6 samtals en Nína Björk Geirsdóttir úr GKj. varð önnur, einu höggi á eftir Tinnu.

Golf

Lee Westwood þrífst undir pressu

Kylfingurinn Lee Westwood greinir frá því hvernig hann reynir að notfæra sér þá miklu pressu sem fylgi oft á tíðum í golfinu í ítarlegu viðtali við vefsíðuna pgatour.com, en Westwood er óðum að undirbúa sig fyrir US Masters sem hefst í næstu viku.

Golf

Þrír efstu kylfingar heimslistans verða saman í ráshóp

Þrír efstu kylfingar heimslistans í golfi verða saman í ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana á opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn. Graeme McDowell frá Norður-Írlandi, sem hefur titil að verja á mótinu, verður í ráshóp með Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku. Oosthuizen sigraði sem kunnugt er á opna breska meistaramótinu en með þeim í ráshóp verður áhugamaðurinn Peter Uihlein sem sigraði á opna bandaríska meistaramótinu.

Golf

Rigning stríðir golfurum í Eyjum

Fresta þurfti öðrum hring á Eimskipsmótaröðinni í golfi sem fram fer í Vestmannaeyjum vegna úrkomu. Mótstjórn hefur tekið þá ákvörðun að fella hringinn niður. Arnar Snær Hákonarson og Nína Björk Geirsdóttir hafa forystu fyrir þriðja hring sem fram fer á morgun.

Golf

Annað stigamót ársins fer fram í Eyjum um helgina

Annað stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi fer fram í Vestmannaeyjum um helgina og verða leiknar 54 holur að þessu sinni. Aðeins 83 keppendur eru skráðir til leiks og sigurvegararnir frá fyrsta stigamóti ársins sem fram fór á Garðavelli á Akranesi eru báðir fjarverandi.

Golf