![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2023-07-13T102850.832Z-vikingur.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4218.png)
Framkvæmdastjóri HK harmar stöðuna sem upp kom í Kórnum í gær þegar leikur HK og KR í Bestu deild karla átti að fara fram. Unnið er að því að endurgreiða fólki sem greiddi sig inn á leikinn.
Tíðar breytingar Jökuls Elísabetarsonar á byrjunarliði Stjörnunnar voru til umræðu í Stúkunni í gær.
Fjölmargir fóru í fýluferð í Kórinn í Kópavogi í gærkvöld þar sem leikur HK og KR í Bestu deild karla átti að fara fram. Það var dýrt spaug fyrir KR-klúbbinn sem gerði sér rútuferð á leikinn.
Albert Brynjar Ingason furðaði sig á stöðu mála og vinnubrögðunum hjá sínu gamla félagi, Fylki, í Stúkunni í gær.
Æskufélagarnir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson eru mættir í heimahagana í Vestubæ Reykjavíkur og munu taka slaginn með KR í Bestu deild karla. Þeir fagna því báðir að vera komnir heim.
Lið Breiðabliks í Bestu deild kvenna í knattspyrnu hefur heldur betur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í boltanum hér heima.
Leik HK og KR í Bestu deild karla var frestað í kvöld þegar í ljós kom að annað markið sem spila átti með í Kórnum var brotið. KR skellti í æfingu í Kórnum í kjölfarið en stuðningsmenn liðsins fóru hvergi þó enginn væri leikurinn.
Ekkert varð að leik HK og KR í kvöld sem fram átti að fara inn í Kórnum. Varð það ljóst eftir að annað markið var úrskurðað ónothæft og ekki tókst að koma öðru marki á viðeigandi máta fyrir að mati dómara leiksins.
Fallslag HK og KR í Kórnum hefur verið frestað þar sem annað markið í Kórnum virðist hafa brotnað í flutningum. Fundin verður ný dagsetning fyrir leikinn mikilvæga.
Vestri og ÍA gerðu markalaust jafntefli þegar liðin leiddu saman hesta sína á Kerecis-vellinum á Ísafirði í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.
Botnlið Bestu deildar karla, Vestri, hefur fengið danskan markvörð til að fylla skarð Sveins Sigurðar Jóhannessonar sem sleit hásin í fyrradag.
Sjö mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í gær. KA, Fram og Breiðablik unnu sína leiki.
Íþróttamennirnir og sálfræðingarnir Hjálmtýr Alfreðsson og Viktor Örn Margeirsson hafa stofnað fyrirtækið Hugrænn styrkur þar sem þeir bjóða upp á sálfræðiaðstoð fyrir afreksfólk í íþróttum.
Srdjan Tufegzdic, Túfa, stýrði sínum fyrsta leik með Val í dag eftir að Arnari Grétarssyni var sagt upp störfum á dögunum. Túfa fékk enga draumbyrjun í starfi og mátti sætta sig við 1-0 tap gegn sínum gömlu lærisveinum í KA á Greifavellinum.
Breiðablik lagði Fylki að velli með þremur mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvívegis af vítapunktinum og Viktor Örn Margeirsson reif fram skotskóna í leiknum.
KA sigraði Val 1-0 í 17. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum fyrr í kvöld í fyrsta leik Srdjan Tufegzdic sem þjálfara Vals.
Fram vann mikilvægan 2-1 sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Magnús Þórðarson skoraði sigurmark heimamanna þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma.
Dagur Örn Fjeldsted hefur skrifað undir lánssamning við knattspyrnudeild HK og leikur með liðinu í Bestu deildinni út tímabilið.
Víkingur vann FH í fjörugum fimm marka leik í gærkvöldi. Víkingar komust yfir, lentu svo undir en tryggðu 3-2 sigur með tveimur mörkum í seinni hálfleik.
Búið er að færa leik HK og KR í Bestu deild karla í fótbolta fram um einn dag.
Það er mikið álag á Víkingum þessa dagana og þá er gott að eiga marga öfluga leikmenn í leikmannahópnum. Hinn tvítugi Gísli Gottskálk Þórðarson sýndi í síðasta leik að hann er í þeim hópi.
ÍBV vann 2-1 endurkomusigur á Njarðvík í dag í Lengjudeild karla í fótbolta. Það verður því sungnir sigursöngvar á Þjóðhátíðinni í kvöld.
Eftir tap gegn skoska liðinu St. Mirren í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í gær greindi stjórn knattspyrnudeildar Vals frá því að þjálfara liðsins, Arnari Grétarssyni, hefði verið sagt upp störfum. Inn í hans stað hefur Srdjan Tufegdzic, betur þekktur sem Túfa, verið ráðinn sem þjálfari Vals. Vendingar sem marka endurkomu hans til Vals.
Stjórn knattspyrnudeildar Vals hafði ákveðið fyrir leik gærkvöldsins við St. Mirren í Skotlandi að skipta um þjálfara. Ljóst er að stjórnin átti ekki samningaviðræður við Srdjan Tufegdzic, Túfa, um að taka við liðinu á mettíma eftir leik.
Leikur FH og Víkings í Bestu deild karla sem fara átti fram á þriðjudag hefur verið færður fram um einn dag til mánudags.
Arnar Grétarsson hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara karlaliðs Vals í fótbolta. Srdjan Tufegdzic tekur við Valsmönnum.
Aron Einar Gunnarsson segir tilfinninguna að hafa skrifað undir samning við uppeldisfélagið sitt góða. Hann stefnir á að spila sem atvinnumaður í vetur en á næsta tímabili verður hann alkominn heim til Þórs.
Aron Einar Gunnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þór Akureyri. Hann var kynntur til leiks að viðstöddu fjölmenni í félagsheimi Þórs í dag.
Pálmi Rafn Pálmason, starfandi þjálfari karlaliðs KR og verðandi framkvæmdastjóri félagsins, er að ganga í sitt sjötta starf hjá Vesturbæjarliðinu á skömmum tíma.
Aron Einar Gunnarsson hefur samið við uppeldisfélagið Þór á Akureyri og verður kynntur sem leikmaður liðsins í dag. Vera má að hann fari á láni til Belgíu.