Íslenskir réttir öðlast nýtt líf 10. september 2004 00:01
Þótt matreiðslubækurnar Cool Cuisine og Cool Dishes heiti framandi nöfnum innihalda þær bæði þjóðlegar og nútímalegri uppskriftir að rammíslenskum mat. Þar öðlast hefðbundnir réttir nýtt líf svo sem kjötsúpa, plokkfiskur, hangikjöt og steikt slátur og lýst er hvernig matreiða á lunda, hreindýr, lambakjöt, krækling og ferskan fisk svo nokkuð sé nefnt. Myndirnar eru þannig að maður fær vatn í munninn og hönnun bókanna vekur upp hungur og lyst. Hér er komin góð viðbót við þær ferðamannabækur sem á markaðnum eru og henta líka vel til gjafa. Þær eru í fallegu broti og mjúkar viðkomu. Cool Cuisine er 147 blaðsíður að stærð og í henni eru um 100 uppskriftir en Cool Dishes er í smærra broti, 74 blaðsíður að stærð og í henni er úrval uppskrifta úr fyrrnefndu bókinni. Það er Matarástarkonan góðkunna Nanna Rögnvaldardóttir sem hefur tekið efnið saman og Gísli Egill Hrafnsson er myndasmiðurinn. Vaka Helgafell gefur bækurnar út.
Matur Mest lesið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Sjónræn tónlistarhátíð í fyrsta sinn Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira