Innlent

Óhapp við umferðarljós

Betur fór en á horfðist í allhörðum árekstri á Akureyri upp úr klukkan 14 í gær þegar tveir bílar skullu saman á umferðarljósum við Glerárgötu og Tryggvabraut. Flughált var á Akureyri í gær. Óhappið varð þegar maður á sjötugsaldri ók yfir á rauðu ljósi og klessti þá á annan bíl. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var ökumaður og farþegi í hinum bílnum en engin meiðsli urðu á fólki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×