Allt er gott með nógri sósu: Bernaisesósa og hnetusósa "Satay" 11. apríl 2005 00:01
Tak frá mér Guð allt sósusull, sagði Þórbergur Þórðarson einu sinni en það eru ekki allir á sama máli og hann um sósur. Sumir geta ekki hugsað sér að borða kjöt án þess að þykk, brún eða gullin sósa leiki um það, austurlenskur matur væri ekki nema svipur hjá sjón ef ekki væri fyrir sósurnar sem gefa matnum bragð, lykt og lit og þá er ótalin hnausþykk súkkulaðisósa út á kökur eða ís. Við fengum tvo matreiðslumenn til að gefa okkur uppskriftir að mjög ólíkum en sívinsælum sósum. Guðni Jón Árnason, yfirmatreiðslumaður á Hereford Steikhúsi, gefur hér uppskrift að sígildri bernaise-sósu.Bernaisesósa4 eggjarauður400 gr smjör (brætt)2-3 msk. Bernaise-bragðefni1-2msk. estragon1tsk. nautakraftur1 sítrónubátursalt og pipar Smjörið er brætt. Þeytið eggjarauðurnar og bernaise-bragðefnið saman yfir heitu vatnsbaði.Smjörið er sett varlega út í og pískað vel saman. Bragðbætt með estragoni, kjötkrafti, sítrónusafa, salti og pipar. Óli Kárason á Asíu gefur okkur uppskrift að súrsætri sósu og indónesískri hnetusósu "satay".Hnetusósa „Satay" að asískum hætti 2 bollar af kjúklingasoði 3 matskeiðar "Crunchy Peanut" Hnetusmjör (Peter Pan) 1/2 matskeið af salti 1/2 matskeið af sykri 1 matskeið af grófu maukuðu chili Maísmjöl eftir smekk Kjúklingasoð og hnetusmjör er hrært saman í potti við miðlungshita. Síðan er salti, sykri og chili blandað út í og þykkt með maísmjöli eftir smekk. Hnetusósan bragðast mjög vel út á kjúkling og fisk en einnig stendur hún prýðilega með tofú kjöti og grænmeti.Súrsæta sósan 3 litlar dósir af tómatkrafti 2 bollar af ananassafa 2 bollar af sykri 3 bollar af vatni 1 gróft skorinn laukur Maísmjöl eftir smekk Allt innihald er hrært saman við miðlungshita og svo þykkt upp að vild með maísmjöli. Súrsæt sósa er einkar ljúffeng með djúpsteiktum mat, sérstaklega þó rækjum. Gott er að bera fram hrísgrjón með þessum sósum þar sem þau blandast þeim vel og auka enn á bragðgæðin. Að lokum fylgir svo ein uppskrift að einfaldri en frábærri súkkulaðisósu sem er góð með flestum eftirréttum, út á ís, ávexti eða kökur. Mars eða suðusúkkulaði er hitað í örbylgjuofni í hálfa til eina mínútu. Bætið rjóma út í og hrærið rólega saman við. Nammi namm. Hnetusósa Súrsæta sósan
Bearnaise-sósa Sósur Uppskriftir Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun