Sport

ÍBV vann einvígið við Stjörnuna

Eyjastúlkur hafa tryggt sér farseðilinn í úrslitarimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta þar sem þær mæta Haukum, eftir stórsigur á Stjörnunni í oddaleik í Eyjum í dag, 32-24. Staðan í hálfleik var 16-12 fyrir ÍBV sem vann einvígið 2-1. Markahæstar hjá ÍBV voru Anastasia Patsiou með 10 mörk og Eva Björk Hlöðversdóttir með 8 (5 úr vítum). Hjá Stjörnunni var Hekla Daðadóttir markahæst með 6 mörk og Kristín Clausen með 5 mörk. Haukastúlkur eiga heimaleikjaréttinn í úrslitarimmunni og verður fyrsti leikurinn háður næstomandi laugardag, 23. apríl. Það lið sem er á undan að vinna 3 leiki hampar titlinum sem ÍBV hefur til varnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×