Innlent

Þrettán ára í forsvari

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit í Hveragerði um síðustu helgi vegna gruns um að fíkniefnaneysla væri þar viðhöfð og reyndist sú raunin. Eigandi hússins var þó hvergi sjáanlegur en í hans stað hafði 13 ára drengur lyklavöldin og umboð húseigandans meðan hann hafði brugðið sér til mánaðar vinnudvalar. Lögreglunni hafði tveim dögum áður borist grunur um að húseigandinn veitti ungmennum fíkniefni og áfengi í húsi sínu en við húsleit fundust aðeins tól til fíkniefnaneyslu en engin fíkniefni. Í seinni húsleitinni fundust hinsvegar amfetamín og kannabisefni en enginn húseigandi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×