Innlent

Banaslys á Breiðholtsbraut

Ung kona beið bana í bílslysi á Breiðholtsbraut í morgun. Vegfarandi tilkynnti slysið til lögreglu klukkan níu í morgun en ekki er vitað nákvæmlega hvenær það átti sér stað. Konan, sem er á tvítugsaldri, ók bíl sínum í norðaustur eftir Breiðholtsbraut. Skammt frá Norðlingaholti virðist sem hún hafi ekið á vegrið og farið eftir því öfugum megin og bíllinn síðan oltið fram af veginum, en nokkur halli er þar niður þar sem reiðgöng eru undir veginum á þessum stað. Konan var látin þegar að var komið. Hún var ein í bílnum. Ekki er unnt að greina frá nafni hinnar látnu á þessari stundu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×