Innlent

Sækir veikan sjómann við Hornbjarg

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF var kölluð kölluð út á hádegi til að sækja veikan sjómann um borð í bát norður af Hornbjargi. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað nákvæmlega amar að manninum en hann var hífður um borð í þyrluna rétt fyrir klukkan hálfþrjú. Þyrlan heldur svo til Ísafjarðar til þess að taka eldsneyti og verður í kjölfarið flogið til Reykjavíkur, en reiknað er með að þyrlan lendi þar um hálffimm. Maðurinn mun svo gangast undir rannsókn á Landspítalanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×