Innlent

Eldur í Ingunnarskóla í morgun

Eldur kviknaði í Ingunnarskóla í Grafarholti í morgun. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálffimm. Að sögn lögreglu var kveikt í fiskikörum við skólann með þeim afleiðingum að eldur barst í þakskegg skólans og hlaust töluvert tjón af. Slökkvistarf gekk vel. Þá var slökkviliðið í Borgarnesi kallað út í nótt vegna elds í bílskúr. Þegar það kom á staðinn hafði heimilisfólk ráðið niðurlögum eldsins. Eldurinn var smávægilegur og lítið sem ekkert tjón hlaust af.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×