Innlent

Vopnað rán í Lyf og heilsu

Vopnað ráð var framið í lyfjaversluninni Lyf og heilsa við Háaleitisbraut í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. Tveir menn á tvítugsaldri ógnuðu starfsfólki með sprautunálum og komust á brott með tíu pakka af rítalíni og öðrum morfínskyldum efnum. Mennirnir hafa enn ekki fundist en Haukur Ásmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir mennina hafa náðst á myndavél og þó svo þeir hafi hulið andlit sín með treflum komi það síður en svo í veg fyrir að þeir finnist fljótlega, enda ekki ólíklegt að þeir hafi áður komið við sögu lögreglunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×