Innlent

Valt við að sturta mold

Ökumaður vörubíls meiddist lítillega þegar bíll hans valt á hliðina þar sem hann var að sturta mold í pytt í grennd við Nátthaga í Ölfusi klukkan að ganga 10 í gærmorgun. Að sögn lögreglu á Selfossi var maðurinn í fyrstu fluttur til myndatöku á heilsugæslustöðina á Selfossi, en þaðan var hann sendur til frekari rannsókna á Landspítala-háskólasjúkrahús í Fossvogi í Reykjavík. Hann var þó ekki talinn mikið meiddur. Verið var að losa vagninn utan alfaraleiðar og hafði óhappið því engin áhrif á umferð á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×