Sport

KA vann öruggan sigur á Val

KA-menn unnu öruggan sigur á Val í DHL-deild karla í handbolta í kvöld, 33-26, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-11. Með sigrinum komst KA í annað sæti deildarinnar, en Valur er í þriðja sætinu og á leik til góða. Goran Gusic var atkvæðamestur í liði KA með 10 mörk, Andri Snær Stefánsson skoraði 7 og þeir Jónatan Magnússon og Ragnar Snær Njálsson skoruðu 6 mörk hvor. Hjá Val skoruðu þeir Hjalti Pálmason, Baldvin Þorsteinsson og Mohamadi Loutoufi 5 mörk hver.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×