Heilbrigðisráðuneytið hunsar tilmæli 6. nóvember 2006 07:00 Sigurður Þórðarson
Ríkisendurskoðun gerði stjórnsýsluúttekt á þjónustu við aldraða árið 2005 þar sem meðal annars var mælst til þess að ríkið gerði þjónustusamninga við dvalar- og hjúkrunarheimili. Ekkert hefur verið aðhafst í þeim málum enn. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, segir slíka þjónustusamninga ekki á döfinni. „Ég get ekki svarað fyrir það hvers vegna þetta hefur ekki verið gert,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. „Við höfum farið í þessi mál sem varðar þjónustu við aldraða. Í stjórnsýsluúttekt okkar síðan í fyrra kemur fram að við teljum stjórnvöld þurfa að setja fram kröfur um lágmarksþjónustu öldrunarheimila sem rekin eru fyrir opinber framlög.“ Hann segir að slíkt veitti heimilunum aukið aðhald og stuðlaði að auknu jafnrétti fyrir þá sem þar dvelja, auk þess sem eðlilegt megi telja að ríkið viti hvaða þjónustu það greiðir fyrir. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær segir Siv Friðleifsdóttir ekki á döfinni að gera þjónustusamninga við dvalar- og hjúkrunarheimili. Bæði hafi landlæknir eftirlit með því að þjónustan sem greitt er fyrir sé veitt og einnig sé í gildi gæðakerfi sem greitt er eftir.
Innlent Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Fleiri fréttir Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Sjá meira